Félagsmenn Eflingar samþykktu boðun verkfalls 8. mars meðal hreingerningafólks á hótelum með „yfirgnæfandi meirihluta greiddra atkvæða“ eins og segir í tilkynningu á Facebook síðu Eflingar.
Af 862 greiddum atkvæðum voru 769 sem samþykktu boðunina, 67 greiddu atkvæði gegn og 26 tóku ekki afstöðu. Verfallsboðunin var því samþykkt með 89 prósent atkvæða.
Formaður Eflingar, Sólveig Anna Jónsdóttir, sagði niðurstöðuna mikinn byr undir báða vægi í komandi baráttu. „Félagsmenn hafa talað. Ég er innilega stolt af félagsmönnum okkar sem hafa sent mjög skýr og kröftug skilaboð með atkvæðum sínum. Það var ótrúlegt að upplifa andrúmsloftið á vinnustöðunum þar sem við skipulögðum atkvæðagreiðslur.“
Verkfallsboðunin telst nú samþykkt af félagsmönnum og verður afhent SA og Ríkissáttasemjara strax eftir að skrifstofur opna í dag, föstudaginn 1. mars.
„Í dag mun Efling tilkynna um víðtækari verkfallsaðgerðir sem verða samstilltar með VR og ná lengra fram í tímann. Efling þakkar öllum félagsmönnum sem tóku þátt í atkvæðagreiðslunni sem og kjörstjórn Eflingar og starfsfólki sem vann hörðum höndum að kosningunni,“ segir í tilkynningunni.
Á kjörskrá voru 7950 einstaklingar og þátttaka var því rétt tæp 11 prósent.
Félagsmenn í Eflingu og VR eru um 60 þúsund talsins, 32 þúsund í VR en 27 þúsund í Eflingu, að því er segir á vefsíðu Eflingar.