Miklar sveiflur á verðmiða Icelandair - Allra augu á WOW air

Gengi hlutabréfa í Icelandair hefur sveiflast mikið frá degi til dags á undanförnum mánuðum.

Icelandair og WOW air
Auglýsing

Gengi bréfa í Icelandair hefur sveifl­ast mik­ið, frá degi til dags, á und­an­förnum vikum á mán­uðum en á síð­ustu við­skipta­dögum hefur verð­mið­inn á fyr­ir­tæk­inu rokið upp. 

Í dag hækk­aði gengi bréfa félags­ins um 6,35 pró­sent og nemur mark­aðsvirði félags­ins nú um 42 millj­örðum króna. Á und­an­förnu ári hefur verð­mið­inn hins vegar lækkað veru­lega eða um 47 pró­sent.

Ástæðan fyrir miklum sveiflum á gengi bréfa félags­ins á und­an­förnum mán­uðum má að miklu leyti rekja til tíð­inda af WOW air, en félagið hefur frá því í haust reynt að tryggja sér fjár­magn til rekstr­ar­ins sem dugar til að tryggja fram­tíð félags­ins. Tíð­indi af þessum helsta keppi­naut Icelanda­ir, þegar kemur að flugi til og frá Íslandi, hafa mikil áhrif á mark­að­i. 

Auglýsing

Rekstur Icelandair hefur gengið erf­ið­lega und­an­farin miss­eri en félagið tap­aði 6,8 millj­örðum króna á fjórða fjórð­ungi síð­asta árs.

Eins og greint var frá fyrir helgi, þá ætla WOW air og banda­ríska félagið Indigo Partners að taka sér mánuð til við­bót­ar, til 29. mars, til að reyna að ná sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu síð­ar­nefnda félags­ins í WOW air. 

Stjórn­­völd fylgj­­ast nú náið með stöð­unni, eins og greint hefur verið frá í umfjöllun Kjarn­ans, og það við um rík­­is­­stjórn, yfir­­­menn Sam­­göng­u­­stofu, ISA­VIA og eft­ir­lits­­stofn­anna í fjár­­­mála­­kerf­inu, Seðla­­bank­ans og FME. 

Rík­­is­­stjórnin átti fund seinni part­inn á fimmtu­dag­inn síð­ast­lið­inn, þar sem mál­efni er tengd­ust WOW air voru meðal ann­­ars rædd, þó fund­­ur­inn hafi verið boð­aður af öðru til­­efn­i. 

Í ljósi þess að staða WOW air er metin fall­völt, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, ef ekki tekst að útvega félag­inu fjár­­­magn á næstu mis­s­erum, þá hafa yfir­­völd sett sig í þær stell­ingar að illa geti farið en vonir standa þó alltaf til þess að það tak­ist að tryggja fjár­­­mögnun félags­­ins. Arion banki á tölu­verða hags­muni undir sem lán­veit­andi, en bank­inn hefur nú þegar farið illa út úr falli flug­­­fé­lags þegar Pri­­mera Air fór í gjald­­þrot í lok síð­­asta árs.

Ljóst er að fall WOW air gæti haft víð­tækar nei­­kvæðar afleið­ingar á hag­­kerfi lands­ins, eins og fram hefur komið áður, og var meðal ann­­ars ein sviðs­­mynd stjórn­­­valda, sem greind var í fyrra, á þá leið að hag­vöxtur gæti farið niður um 3 pró­­sent við fall félags­­ins. 

Und­an­farna mán­uði hefur þó tek­ist að vinna mik­il­vægan tíma til að end­­ur­­skipu­­leggja stöð­una, bæði hjá Icelandair og WOW air, en félagið greip meðal ann­­ars til sár­s­auka­­fullra aðgerða í des­em­ber þegar 350 starfs­­menn misstu vinn­una hjá félag­inu í hag­ræð­ing­­ar­að­­gerð­­um. 

Skúli Mog­en­­sen, for­­stjóri og eig­andi WOW air, sagði við það til­­efni að aðgerð­­irnar hefðu verið nauð­­syn­­legar til að styrkja fjár­­hag­inn og end­­ur­­skipu­­leggja fram­­tíð­­ar­­stefn­una, í takt við vænt­ingar og mat Indigo Partners.

Staðan í við­ræðum WOW air og Indigo er gerð að umtals­efni í umfjöllun á breska við­skipta­vefnum City AM. Þar segir að helst sé deilt um það í við­ræð­unum hversu mikið Skúli Mog­en­sen eigi að fá stóran eign­ar­hlut í félag­inu ef Indigo ákveður að fjár­festa.

Eru heim­ild­ar­menn City AM meðal ann­ars hafðir fyrir því að staða WOW air sé alvar­leg, og það sé ekki óeðli­legt að Indigo geri kröfu um að fá stóran eign­ar­hlut, og að hlutur Skúla þynn­ist út. 

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra. Á sama tíma­bili árið á undan nam tap félags­­­­­ins 13,5 millj­­­­­ónum dala, jafn­­­­­virði tæp­­­­­lega 1,7 millj­­­­­arða króna miðað við núver­andi gengi.

Mikið er í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf, eins og áður seg­ir, enda hefur WOW air verið í lyk­il­hlut­verki við upp­­­­­gang í ferða­­­þjón­­­ustu og efna­hags­­­lífi lands­ins, á und­an­­­förnum árum, og flutt til lands­ins 600 til 700 þús­und ferða­­­menn á ári, með til­­­heyr­andi marg­­­feld­is­á­hrifum á efna­hag lands­ins.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent