Boeing kyrrsetur allar 737 Max þotur

Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hef­ur kyrr­sett all­an 737 Max flug­flot­ann eft­ir að rann­sókn leiddi í ljós ákveðin líkindi milli flugslysanna tveggja. Alls er 371 þota af Boeing 737 Max gerðinni í notk­un í heim­in­um.

boeingin.png
Auglýsing

Auglýsing

Banda­ríski flug­véla­fram­leið­and­inn ­Boein­g hefur ákveðið að kyrr­setja allar 737 Max far­þega­þotur í heim­inum eftir ný sönn­un­ar­gögn fund­ust á vett­vangi flug­slys­s­ins þar sem þota Et­hi­opi­an A­ir­lines ­fórst á sunn­u­dag­inn. ­Rann­sak­endur komust að því að ákveðin lík­indi eru með flug­slys­inu í Eþíópíu og flug­slys­inu í Indó­­nes­íu í októ­ber en þá lét­ust 189, eða all­ir um borð. Báðar flug­vél­arnar vor­u ­Boein­g 737 Max þot­ur. Frá þessu er greint á vef breska ­rík­is­út­varps­ins, BBC. 

Lík­indi milli slysanna

­Banda­ríska flug­mála­eft­ir­lit­ið, ­Feder­al A­vi­ation Ad­ministration, á­kvað að  kyrr­setja allar 737 Max vélar í Banda­ríkj­unum þegar í ljós kom ákveðin lík­inda á milli­ slysanna t­veggja. Auk þess höfðu nýjar upp­lýs­ingar úr gervi­hnöttum ýtt undir þá nið­ur­stöðu. Fyrr í vik­unni höfð­u flug­mála­yf­ir­völd í Bret­landi, Kína, Suð­ur­-Afr­íku, Singapúr, Indónesíu, Ástr­alíu og Mexíkó bannað umferð flug­véla af þess­ari gerð. Auk þess höfðu flug­fé­lög­in E­aster Jet, Norweg­i­an og Icelanda­ir ­kyrr­sett allar 737 Max þot­urn­ar sín­ar.

Skömmu eftir ákvörðun banda­ríska flug­mála­eft­ir­lits­ins á­kvað flug­véla­fram­leið­and­inn ­Boein­g að kyrr­setja flot­ann eins og hann leggur sig, en 371 þota hefur verið smíðuð af þess­ari gerð.

Boein­g hafði sagt í yfir­­lýs­ingum í vik­unni að ekki hafi komið fram nein gögn sem benti ein­­dregið til þess að rétt væri að banna flug á öllum flug­­­vélum af gerð­inni 737 Max 8. Í umfjöll­un BBC er greint frá því að ­Boein­g hafi enn mikla trú öryggi 737 Max flug­vél­arnar en eftir að hafa ráð­fært sig við FA­A hafi fyr­ir­tæki ákveðið að kyrr­setja vél­arnar til að gæta fyllstu var­úðar og til að vinna aftur traust far­þega á öryggi vél­anna. 

Íslenska flug­fé­lag­ið Icelanda­ir á þrjár 737 Max flug­vélar og á von á fleirum í nán­­ustu fram­tíð. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent