Þarf að aftengja flokkspólitík frá skipun í stöður innan dómsvaldsins

Prófessor í stjórnmálafræði bendir á að það sé persónupólitík í Landsréttarmálinu sem hafi áhrif á stjórnarsamstarf þeirra flokka sem mynda ríkisstjórnina.

Eiríkur Bergmann 13. mars 2019 klippa 1
Auglýsing

„Póli­tískt held ég að þá eru skila­boðin þau að það fram­ferði sem menn höfðu tamið sér hérna fyrir nokkrum árum, og þeim ára­tugum sem liðu á und­an, þar sem stjórn­mála­menn fóru bara fram í krafti valds síns og gerðu nokkurn veg­inn það sem þeim sýnd­ist með því að teygja skiln­ing lag­anna að ein­hverju leyti í þær áttir sem þeir sjálfir vildu helst túlka, að sú tíð er kannski lið­inn. Og að menn verði að átta sig á því að það sé ekki hægt að fara fram með sama hætt­i.“

Þetta er meðal þess sem Eiríkur Berg­­mann Ein­­ar­s­­son, pró­­fessor í stjórn­­­mála­fræði, sagði um dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu í Lands­rétt­ar­mál­inu og afsögn Sig­ríðar Á. And­er­sen úr emb­ætti dóms­­mála­ráð­herra í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni. Eiríkur var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­­son­­ar, rit­­stjóra Kjarn­ans, í þætt­in­um. Hægt er að sjá stiklu úr honum hér að neð­an.

Auglýsing





Eiríkur minnti á að það væri líka per­sónupóli­tík í mál­inu sem hafi áhrif á stjórn­ar­sam­starf þeirra flokka sem mynda rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ur. „Í fyrri rík­is­stjórn þá er það Sig­ríður And­er­sen sem að tekur út úr hópi hæf­ustu helsta lög­fræði­lega ráð­gjafa Vinstri grænna, Ást­ráð Har­alds­son, sem hefur starfað með vinstri­hreyf­ing­unni í ára­tugi. Það er ekki bara að hann sé fag­lega og póli­tískt nátengdur Vinstri grænum heldur er hann tengdur for­ystu­fólki þar fjöl­skyldu­bönd­um. Á sama tíma og hann er tek­inn út þá er eig­in­kona núver­andi þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins færð úr neðri sætum og situr í dómnum í stað­inn fyrir Ást­ráð og hina.“

Þar á Eiríkur við Arn­fríði Ein­ars­dótt­ur, einn þeirra fjög­urra umsækj­enda í Lands­rétt­inn sem hæf­is­nefndin mælti ekki með að skipa í rétt­inn en Sig­ríður ákvað samt að skipa. Arn­fríður er eig­in­kona Brynjars Níels­son­ar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Fleiri hafa bent á þessa stöðu. Í grein­ar­gerð sinni fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stóli Evr­ópu, í mál­inu sem Ísland tap­aði síð­ast­lið­inn þriðju­dag, hélt Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son lög­maður því meðal ann­ars fram að dóms­mála­ráð­herra hefði hand­valið umsækj­endur á þann lista sem hún lagði fyrir Alþingi til sam­þykkt­ar. Það hafi hún gert á grund­velli vin­áttu og póli­tískra tengsla. Í mála­til­bún­aði Vil­hjálms var því haldið fram að Arn­fríður hafi verið skipuð sem hluti af hrossa­kaupum innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar sem Brynjar Níels­son gaf í stað­inn eftir odd­vita­sæti sitt í öðru Reykja­vík­ur­kjör­dæm­inu í síð­ustu kosn­ingum til Sig­ríðar Á. And­er­sen.

Eiríkur sagði að þessi staða geri sam­starfið innan rík­is­stjórn­ar­innar flók­ið. „Og er til að bæta ofan á flækju­stigið þar sem menn eru per­sónu­lega tengdir leik­end­unum sem að eru þarna á bak­við.“

Hann segir að þetta sýni að það þurfi að taka það alvar­legar að aftengja flokkspóli­tík frá skipun í stöður innan dóms­valds­ins.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent