Segir að samninganefnd SGS muni aldrei taka þátt í að semja um að rýra kjör

Samninganefnd SGS segir það miður að Framsýn hafi þurft að bera félaga sína þungum sökum í tengslum við ákvörðun félagsins um að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu.

Samninganefnd SGS
Samninganefnd SGS
Auglýsing

Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands Íslands sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna frétta fjöl­miðla þess efnis að stétt­ar­fé­lagið Fram­sýn hafi ákveðið að aft­ur­kalla ­samn­ings­um­boð sitt frá Starfs­greina­sam­band­in­u. ­Samn­inga­nefnd SGS ­segir það miður að í tengsl­u­m við þá ákvörðun hafi Fram­sýn þurft að bera félaga sína þungum sök­um. Í yfir­lýs­ing­unni segir að samn­inga­nefnd S­GS muni aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör síns fólks, hvort sem það líti að vinnu­tíma, álags­greiðslna eða ann­arra þátta. 

Segir að ein­stak­lingar innan hreyf­ing­ar­innar hafi viljað skoða vinnu­tíma­breyt­ingu

Fram­­sýn, stétt­­ar­­fé­lag Þing­ey­inga, sam­þykkti á fundi sín­um í gær­kvöldi að aft­­ur­­kalla samn­ings­um­­boðið sem fé­lagið veitti Starfs­­greina­­sam­­band­inu. Aðal­­­steinn Árni Bald­­ur­s­­son, for­maður Fram­­sýn­­ar, sagði í sam­tali við mbl.is í gær að félagið eigi mikla sam­leið með­ VR, Efl­ing­u, VLFA og VLF­G þar sem þau séu þau einu sem hafi alfarið hafnað til­lögum að vinnu­tíma­breyt­ingum sem Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafi lagt til­. Að­al­steinn ­sagði að Fram­­sýn hafi ávallt haft sömu af­­stöðu gagn­vart þess­um til­­lög­um SA og því eðli­­legt að fé­lög­in starfi sam­­an.

Jafn­framt sagði hann að innan hreyf­ing­ar­innar hafi verið ein­stak­lingar sem hafi viljað skoða vinnu­tíma­breyt­ing­ar. „Því miður er það þannig að inn­­an hreyf­­ing­­ar­inn­ar hafa verið ein­stak­l­ing­ar sem hafa viljað skoða þetta, en maður átt­ar sig ekki á því. Þetta er bara bull­andi kjara­skerð­ing fyr­ir fólk að skera niður yf­ir­vinn­u­­tíma og lengja dag­vinn­u­­tíma,“ sagði Aðal­­­steinn.

Auglýsing

Samn­inga­­nefnd S­GS ­seg­ir Fram­­sýn hafa borið ­fé­laga sína þung­um sök­um 

Í yfir­lýs­ing­unni frá­ S­GS ­segir að það sé í sam­ræmi við for­ræði ein­stakra félaga að Fram­sýn hafi ákveðið að aft­ur­kalla ­samn­ings­um­boð sitt frá sam­band­inu. SGS hafn­ar hins veg­ar á­sök­unum Fram­sýnar og segir það vera miður að vera borin þungum sökum af félögum sín­um. „Það er miður að í tengslum við þessa sam­þykkt þurfi að bera félaga sína þung­um ­sök­um. Samn­inga­nefnd ­Starf­greina­sam­bands­ins mun aldrei taka þátt í því að semja um að rýra kjör okkar fólks, hvort sem það lítur að vinnu­tíma, álags­greiðslna eða ann­ara þátta.“ 

Þá segir í yfir­lýs­ing­unni að í við­ræð­u­m S­GS við Sam­tök atvinnu­lífs­ins hafi þessi afstaða komið fram með „mjög sterkum og afdrátt­ar­lausum hætti“ og að samn­inga­nefnd­ar­mönnum ætt­i því að vera það „al­ger­lega ljóst“. Þá er minnt á það í yfir­lýs­ing­unni að S­GS s­leit við­ræð­unum við SA ­vegna þess­ara þátta. 

„Samn­inga­nefnd Starfs­greina­sam­bands­ins mun ekki standa í skeyta­send­ingum við félaga sína í fjöl­miðl­um. Verk­efni okkar er að ná samn­ingum um bætt kjör okkar fólks, við ein­beittum okkur að því í sam­hljómi við félaga okkar í Efl­ingu, Verka­lýðs­fé­lagi Akra­ness og Grinda­vík­ur, “ segir að lokum í yfir­lýs­ing­unni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent