Icelandair Group hefur ákveðið að ekki muni verða af hugsanlegri aðkomu félagsins að rekstri WOW air eftir samningaviðræður um helgina. Þetta kemur fram í tilkynningu flugfélagsins á Kauphöllinni.
Kjarninn hefur áður greint frá samningaviðræðunum, en eins og greint hefur verið frá, þá er staða WOW air fallvölt og hefur verið mánuðum saman. Viðræður félagsins, sem Skúli Mogensen á og stýrir, við bandaríska félagið Indigo Partners skiluðu ekki árangri. Í framhaldinu var tilkynnt - með tilkynningu Icelandair til kauphallar - um að WOW air og Icelandair myndu ræða saman um mögulega sameiningu eða kaup Icelandair á WOW air.