Flugvélaframleiðandinn Boeing hefur ákveðið að draga úr framleiðslu á vélum af 737 gerð - þar á meðal Max 8 og Max 9 - vegna rannsókna á flugslysunum í Eþíópíu og Indónesíu, þar sem 346 samtals létu lífið.
Notkun á 737 Max vélunum hefur verið bönnuð á meðan rannsókn stendur yfir á slysunum. Samkvæmt umfjöllun Seattle Times mun ákvörðun Boeing um að draga úr framleiðslu hafa víðtæk áhrif á flugiðnaðinn, og þá einkum flugfélög sem reiða sig á að fá nýjar vélar flugvélaframleiðandans til notkunar á næstu mánuðum.
Ekki er gert ráð fyrir uppsögnun í risavöxnum starfsstöðvum Boeing í Renton, í útjaðri Seattle, en þar starfa tæplega 80 þúsund manns. Ástæðan er sú að félagið þarf að geta brugðist skjótt við, ef það tekst að koma framleiðslunni í full afköst á nýjan leik.
Líklegt er að Boeing muni ekki geta staðið við afhendingar á flugvélum af fyrrnefndri gerð næstu mánuðina, og því munu flugfélög þurfa að leita annarra leiða til að ná í vélar til að geta þjónustað viðskiptavini og standa við áætlanir.
Icelandair er eitt þeirra flugfélaga sem hefur tekið vélar af 737 Max gerð úr notkun, en félagið tók þrjár vélar úr umferð í kjölfar flugslyssins í Eþíópíu, en flugmálayfirvöld víða um heim brugðust við með banni við notkun á vélunum.
Icelandair hefur sagt að félagið geti til skemmri tíma leyst vandann með leigu á öðrum vélum, og hefur nú þegar brugðið til þess ráðs. Félagið hefur gengið frá leigu á tveimur Boeing 767-breiðþotum út september, en það var gert til að tryggja að flugáætlun félagsins raskist sem minnst vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX-véla sem félagið hafði áður fest kaup á.
Samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar, í byrjun mánaðarins, kemur fyrri vélin í rekstur um miðjan apríl, en sú síðari snemma í maí. Verða þær í rekstri út september. Vélarnar eru 262 sæta flugvélar með tveimur farrýmum.
Til lengri tíma - ef það dregst á langinn að Boeing geti afhent nýjar vélar til viðskiptavina - þá gæti Icelandair lent í vandræðum með að fylla flugflota sinn miðað við áætlanir, eins og fleiri flugfélög sem hafa reitt sig á það að fá nýjar vélar afhentar frá Boeing á næstu mánuðum.
Rannsókn bendir til galla
Eins og greint var frá í gær þá fylgdu flugmenn Ethiopian Airline, sem stýrðu 737 Max 8 vél félagsins sem hrapaði með skelfilegum afleiðingum, nákvæmlega fyrirmælum frá flugvélaframleiðandanum Boeing, þegar þeir reyndu að reisa flugvélina við, en allt kom fyrir ekki.
Samkvæmt frumniðurstöðu rannsóknar í Eþíópíu þá bendir allt til þess að flugvélin hafi ekki virkað eins og hún átti að gera - og þá einkum MCAS kerfið sem á að koma í veg fyrir ofris - og því hafi vélin sífellt togast neðar og neðar, og að lokum orsakað brotlendingu með þeim afleiðingum að allir um borð létust, 157 talsins.
Flugmennirnir eru sagðir hafa reynt að aftengja kerfið og gripið til réttra aðgerða, en ekkert hafi virkað.
Niðurstaðan er sögð „martraðarútkoma“ (nightmarish outcome) fyrir Boeing, en fjallað var um rannsóknina á forsíðu Seattle Times í gær.
Í umfjöllun blaðsins, sem Dominic Gates, sérhæfður blaðamaður á sviði flugmála, skrifar, hefur komið fram að mikil framleiðslupressa hafi verið á Boeing, ekki síst vegna þess hve krefjandi hafi verið fyrir félagið að standa við afhendingar á Max vélum. Í umfjöllun blaðsins hefur komið fram að Boeing sé nú að endurskoða allar leiðbeiningar til flugmanna og flugfélaga, og yfirfara öryggiskerfi.
Tekið er fram að nýlegar uppfærslur á kerfum og hugbúnaði eigi að koma í veg fyrir að svona uppákomur geti endurtekið sig, en ef þessi niðurstaða frumrannsókna verður staðfest endanlega, hjá flugmálayfirvöldum í Eþíópíu og einnig í Indónesíu, þar sem 189 létust í 29. október í fyrra, þá gæti Boeing átt von á miklum og þungum afleiðingum, ekki aðeins í formi málsókna, notkunarbanna á flugvélum félagsins og sektargreiðslna, heldur gæti þurft að gjörbreyta framleiðsluferlum, og flugfélög sem reiða sig á vélar félagsins - ekki síst af fyrrnefndri Max gerð - gætu þurft að bíða lengi eftir því að geta fengið vélar afhentar til notkunar.
Nýr bandarískur hluthafi
Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn PAR Capital Management hefur gert bindandi samkomulag um að kaupa 11,5 prósent hlut í Icelandair Group. Fyrirvari er um samþykki hluthafa Icelandair. Eftir kaupin verður sjóðurinn annar stærsti hluthafi félagsins á eftir Lífeyrissjóði verslunarmanna, sem á 12,88 prósent í flugfélaginu.
Rekstur Icelandair hefur verið erfiður að undanförnu og tapaði félagið 6,8 milljörðum króna á síðustu þremur mánuðum síðasta árs. Í lok árs var eiginfjárstaða félagsins upp á 55 milljarða króna, og skuldirnar námu 110 milljörðum.
PAR Capital á meðal annars yfir 5 prósent hlut í einu stærsta fyrirtæki heims á sviði bókunar í ferðaþjónustu, Expedia, en auk þess á sjóðurinn nokkuð stóra eignarhluti í flugfélögum, eins og Southwest, Alaska Airlines, Delta og United Continental. Öll þessi félög hafa nýtt vélar frá Boeing í sinni þjónustu, og glíma því með einum eða öðrum hætti við þau vandamál sem flugslysin tvö, og rannsóknir á ástæðum þeirra, hafa kallað fram.
Boeing er stærsti vinnuveitandi Seattle svæðisins en flestir eru þeir á starfssvæði félagsins í Renton. Félagið er 103 ára gamalt, en sagan teygir sig þó yfir 123 ár.
Markaðsvirði Boeing hefur sveiflast nokkuð undanfarin misseri, en það nemur nú 222 milljörðum Bandaríkjadala, eða sem nemur um 26 þúsund milljörðum króna.
Dennis Muilenburg, forstjóri félagsins, hefur sagt að félagið munið kafa ofan í öll atriði sem rannsaka þarf, vegna flugslysanna tveggja, og vinna í samstarfi við flugmálayfirvöld í hverju landi fyrir sig, eins og þarf. Hann hefur sagt að Boeing sé leiðandi í flugi í heiminum, og því fylgi mikil ábyrgð. Öryggið þurfi að vera í fararbroddi, og þannig verði það áfram.