Arion banki hefur óskað eftir því að Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður verði settur af sem skiptastjóri þrotabús WOW air vegna vanhæfis. Flugfélagið var tekið til gjaldþrotaskipta í síðustu viku og er Arion banki einn stærsti kröfuhafinn í búinu. Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, segir þetta tengjast ágreiningi bankans vegna þrotabú tölvufyrirtækisins Data Cell. Sveinn Andri er einnig skiptastjóri í því búi og Arion banki stærsti kröfuhafinn. Greint er frá þessu í nýjasta tölublaði Mannlífs.
Umdeild skipun
Í síðustu viku var greint frá því að hæstaréttarlögmennirnir Þorsteinn Einarsson og Sveinn Andri Sveinsson voru skipaðir skiptastjórar þrotabús WOW air. Skipunin hefur verið gagnrýnd en stjórnir Lögmannafélags Íslands og Félags kvenna í lögmennsku hafa meðal annars óskað sérstaklega eftir upplýsingum um hvaða verklagsreglur gilda í slíkum tilfellum.
Lögmennirnir Kristrún Elsa Harðardóttir og Saga Ýrr Jónsdóttir sögðu í Morgunútvarpinu í síðustu viku að nauðsynlegt væri að gerðar séu breytingar á ógagnsæju ferli við skipun skiptastjóra í þrotabúum. Þær sögðu að svo virðist sem konum sé ekki treyst fyrir þessum stóru búum. Þá sögðu þær í samtali við mbl.is að gagnrýni á skipunina snúist frekar að því að verið sé að skipa Svein Andra skiptastjóra þar sem hann sé nú þegar skiptastjóri yfir stóru búi, EK 1923. Þær veltu því fyrir sér hvort heppilegt væri að lögmaður sé skiptastjóri yfir tveimur stórum þrotabúum samtímis líkt og raunin er í tilfelli Sveins Andra.
Auk þess bentu þær á að ágreiningsmál væri til meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem fjórir kröfuhafar hafa lagt fram kvörtun gegn Sveini Andra þar sem þau telja að hann hafi ekki upplýst kröfuhafa um mikinn áfallinn kostnað, meðal annars vegna málshöfðana gegn fyrrverandi eiganda félagsins og félaga í hans eigu.
Þórður Már Jónsson lögmaður skrifaði Facebook-færslu þar sem hann gagnrýndi skipunina og sagði hann Svein Andra fá fleiri þrotabú til skiptanna en aðrir. Símon Sigvaldason dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, sem skipaði skiptastjórana yfir þrotabú WOW air, hefur hins vegar vísað því alfarið á bug að hann hygli suma lögmenn umfram aðra við skipun skiptastjóra og hafnaði því jafnframt að hann útiloki konur frá slitabúum.
Þarf mikið til að skiptastjóri sé settur af
Haraldur Guðni segir í samtali við Mannlíf að málið sé í farvegi og verði því ekki rekið frekar í fjölmiðlum. Arnar Þór Stefánsson, lögmaður hjá LEX lögmannsstofu, segir hins vegar að mikið þurfi til þess að skiptastjóri þrotabús verði settur af eftir að hafa verið skipaður. Í samtali við Mannlíf segir hann að undanfarinn sé yfirleitt á þá leið að sett hafi verið fram aðfinnsla við Héraðsdóm á störfum viðkomandi og að Héraðsdómur hafi fallist á réttmæti aðfinnslanna. Hann segir að ef Héraðsdómur telur að þessar aðfinnslur séu nægilega miklar þá geti dómari sett viðkomandi af.