Þörf verður á fleiri tækni- og verkfræðingum úr röðum kvenna á vinnumarkað framtíðarinnar. Norrænu vinnumálaráðherrarnir kynntu á árlegum fundi sínum í Safnahúsinu á miðvikudaginn síðastliðinn rannsóknarverkefni sem á að veita svör við því hvernig jafna megi kynjahlutföll meðal þeirra sem hefja nám í verkfræði og tæknifræði. Frá þessu er greint í frétt félagsmálaráðuneytisins.
Í henni segir að ekki sé til setunnar boðið ef ný tækni eigi ekki að mótast af körlum einum saman. Nú þegar sé skortur á verkfræðingum og sérfræðingum í upplýsingatækni á norrænum vinnumarkaði. Auk þess bendi þróun stafrænnar tæknivæðingar og gervigreindar, notkun vélmenna og líftækni til þess að mennta þurfi mun fleiri á þessum sviðum.
Konur eiga á hættu að missa af atvinnutækifærum
Enn fremur sé mikilvægt að átta sig á orsökum þess að stúlkur og konur á Norðurlöndum velja ekki æðri menntun eða starfsframa í náttúruvísindum, stærðfræði og tæknigreinum.
Þrátt fyrir að stúlkur standi sig eins vel ef ekki betur en strákar í náttúruvísindum og tæknigreinum í grunnskólum og framhaldsskólum velji fáar þeirra háskólanám í umræddum greinum. Fyrir vikið eigi konur á hættu að missa af atvinnutækifærum í starfsgreinum framtíðarinnar.
Mikið tap að geta ekki notið hugsanlegs mannauðs kvenna
Ylva Johansson, vinnumálaráðherra Svíþjóðar, segir það vera mikið tap fyrir samfélagið að geta ekki notið hugsanlegs mannauðs kvenna. „Við verðum að hvetja efnilegar stelpur til að nema náttúruvísindi, stærðfræði og tækni. Það er hagur þeirra sjálfra en ekki síður atvinnugreinarinnar og samfélagsins,“ segir hún. Nýja norræna rannsóknarverkefnið á meðal annars að kanna ástæður þess að námsval er enn kynjað á Norðurlöndum og leita góðra fyrirmynda þar sem tekist hefur að ráða bót á því.
Samkvæmt frétt ráðuneytisins er markmið verkefnisins einnig að kanna starfsframaleiðir í hátæknigreinum, hvernig fólki í náttúruvísindum, stærðfræði og tækni tekst að samræma atvinnu- og fjölskyldulíf og hvort vinnuumhverfið er opið jafnt konum og körlum.
NIKK, norræna upplýsingaveitan um kynjafræði, vinnur verkefnið að beiðni ráðherranefndanna um menntamál, vinnumál og jafnréttismál og á því að ljúka fyrir árslok 2020.