Dómsmálaráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnar í dag ákvörðun sína um að íslenska ríkið myndi óska eftir endurskoðun yfirdeildar Mannréttindadómstóls Evrópu á dómi MDE í máli Guðmundar Andra Ástráðssonar gegn Íslandi sem féll þann 12. mars síðastliðinn. Þetta kemur fram í frétt dómsmálaráðuneytisins.
Í málinu komst meirihluti dómsins að þeirri niðurstöðu að annmarkar á meðferð ráðherra og Alþingis við skipun eins dómara við Landsrétt fælu í sér brot gegn áskilnaði 1. mgr. 6. gr. mannréttindasáttmála Evrópu (MSE) um að skipan dómstólsins sé ákveðin með lögum.
Líklegt er að niðurstaða um það hvort yfirdeildin taki dóminn til endurskoðunar fáist innan fárra mánaða, samkvæmt ráðuneytinu. Taki yfirdeildin málið til endurskoðunar verði þess óskað að málið njóti forgangs en MDE hafi frá upphafi skilgreint málið mikilvægt og hafi það því hlotið flýtimeðferð á fyrri stigum.
Mikil umræða skapaðist um Mannréttindadómstól Evrópu í kjölfar niðurstöðu dómstólsins í Landréttarmálinu svokallaða. Sigríður Andersen, fyrrum dómsmálaráðherra, sagði af sér í kjölfar dómsins en lýsti á sama tíma yfir áhyggjum af framsali valds til túlkunar á íslenskum lögum til erlendra dómstóla. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra tók í svipaðan streng og sagði það umhugsunarefni um hvort dómstólinn væri að „stíga yfir línuna.“ Í kjölfarið komu aðrir þingmenn dómstólnum til varnar og kölluðu eftir því að tekin væri skýr afstaða með dómstólnum í kjölfar þess að ráðherrar hefðu ráðist á trúverðugleika hans.
Telur rétt að óska eftir endurskoðun
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, dómsmálaráðherra segir að þau hafi síðustu vikur skoðað mismunandi fleti málsins. „Eftir þá skoðun tel ég rétt að óska endurskoðunar hjá yfirdeild Mannréttindadómstólsins. Ég tel brýnt að fara þessa leið í ljósi þess hve mikilvæga hagsmuni málið snertir hér á landi. Ég mun halda áfram að skoða aðra fleti málsins en á þessu stigi verða ekki teknar frekari ákvarðanir.”
Í frétt ráðuneytisins segir að dómur MDE hafi ekki aðeins áhrif hér á landi heldur einnig um alla Evrópu, hvað varðar spurningar um það hvort skipan dómstóla sé ákveðin með lögum í þeim skilningi sem lagður er til grundvallar í niðurstöðu meirihlutans. Það sé einnig mat sérfræðinga dómsmálaráðuneytisins, að höfðu samráði við ríkislögmann og dr. Thomas Horn, málflutningsmann og sérfræðing í mannréttindum og réttarfari, að leita eigi endurskoðunar á dómi MDE enda veki málið upp veigamiklar spurningar um túlkun og framkvæmd mannréttindasáttmála Evrópu.