Miða við að Boeing 737 MAX vélarnar verði kyrrsettar til 16. júní

Á tímabilinu 1. apríl til 15. júní mun Icelandair fella niður um 3,6 prósent af flugferðum sínum sem samsvarar rúmlega 100 ferðum á tímabilinu.

Icelandair vél feb 2008
Auglýsing

Upp­færð flug­á­ætlun Icelandair miðar við að Boeing 737 MAX flug­vélar félags­ins verði kyrr­settar til 16. júní næst­kom­andi. Með þeim mót­væg­is­að­gerðum sem gripið hefur verið til með því að bæta leigu­vélum við flota félags­ins hefur tek­ist að tak­marka áhrifin á leið­ar­kerfið veru­lega. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair til Kaup­hallar í dag. 

­Fé­lagið gekk frá leigu á tveimur Boeing 767 breið­þotum sem til­kynnt var um þann 1. apríl síð­ast­lið­inn. Í dag gekk félagið frá leigu á þriðju vél­inni en hún er af gerð­inni Boeing 757-200 og er 184 sæta. Hún verður í rekstri frá 15. maí fram í lok sept­em­ber 2019.

Fjár­hags­leg áhrif kyrr­setn­ing­ar­innar eru óviss á þessu stigi, meðal ann­ars vegna þess að ekki liggur fyrir hversu mikið af þeim kostn­aði sem hlýst af kyrr­setn­ing­unni fæst bættur frá fram­leið­anda, segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Auglýsing

Á tíma­bil­inu 1. apríl til 15. júní mun félagið fella niður um 3,6 pró­sent af flug­ferðum sínum sem sam­svarar rúm­lega 100 ferðum á tíma­bil­inu. Í flestum til­fellum er um að ræða flug til áfanga­staða þar sem fleiri en eitt flug eru í boði sama dag. Þrátt fyrir þessar ráð­staf­anir helst sæta­fram­boð félags­ins nán­ast óbreytt þar sem not­ast verður við Boeing 767 flug­vélar sem eru stærri en Boeing 737 MAX vél­arn­ar. Af þeim sökum er gert ráð fyrir óveru­legum áhrifum á heild­ar­fjölda fluttra far­þega á tíma­bil­inu.

Eins og fram hefur kom­ið, hefur Icelandair jafn­framt ákveðið að hætta við flug til Cleveland í Banda­ríkj­unum og Hali­fax í Kanada á þessu ári. Það skýrist að hluta til af kyrr­setn­ingu MAX vél­anna en jafn­framt hafði áhrif á ákvörð­un­ina að stór hluti far­þega á fram­an­greinda staði eru skiptifar­þegar sem eru að ferð­ast milli N-Am­er­íku og Evr­ópu. Ákveðið var að færa fram­boðið yfir á áfanga­staði þar eft­ir­spurn er meiri eftir ferðum til og frá Íslandi.

„Vegna breyt­inga á sam­keppn­isum­hverf­inu mun Icelandair auka við fram­boð sitt í flugi til Suður Evr­ópu frá því sem áður var ákveð­ið. Félagið hefur nú þegar bætt við fram­boði til Alicante og mun, í sam­starfi við VITA, bjóða flug þangað þrisvar sinnum í viku í sum­ar.

Enn­frem­ur, hefur félagið hafið vinnu sem miðar að því að bæta vélum við flug­véla­flota Icelandair sem ein­ungis eru útbúnar almennu far­rými. Mun fleiri sæti verða í þessum vélum en í núver­andi vélum félags­ins sem lækkar kostnað á hvert fram­boðið sæti og styrkir þ.a.l. sam­keppn­is­hæfni félags­ins á þessum mark­aði. Þessar vélar henta betur í flug til áfanga­staða sem eru ekki hluti af kjarna­leið­ar­kerfi Icelanda­ir, t.d. Alicante og Tenerife, og skapa því tæki­færi til frek­ari vaxt­ar. Gert er ráð fyrir að fyrstu vél­arnar með þess­ari upp­setn­ingu verði komnar í rekstur í byrjun árs 2020,“ segir í til­kynn­ing­unn­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent