Forstjóri Boeing: Max vélarnar verða þær öruggustu

Boeing vinnur nú að því að uppfæra hugbúnaðinn í 737 Max vélunum. Forstjórinn biðst afsökunar.

MGN+Boeing+737+Max.jpg
Auglýsing

For­stjóri og for­seti aðal­stjórnar Boeing, Dennis Mui­len­burg, sendi frá sér ávarp á vef­gáttum félags­ins í gær, á Face­book og Youtube þar á með­al, þar sem hann segir að Boeing muni vinna að heil­indum af því að tryggja að 737 Max vélar félags­ins, verði þær örugg­ustu í flug­flota heims­ins. 

Þá seg­ist hann harma þau óþæg­indi sem flug­fé­lög og far­þegar um allan heim hafa orðið fyr­ir, vegna kyrr­setn­ingar á Max vél­un­um, í kjöl­far hörmu­legra flug­slysa í Indónesíu og Eþíóp­íu, þar sem allir um létu­st, sam­tals 346. 

Hann ítrek­aði það sem hefur komið fram hjá honum áður, að hug­ur­inn væri hjá aðstand­endum þeirra sem hefðu látið líf­ið, og að Boeing myndi gera allt sem hægt væri til að kom­ast til botns í því hvað fór úrskeið­is. 

Auglýsing

Frum­nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar á flug­slys­inu í Indónesíu, 29. októ­ber í fyrra, þegar 737 Max Lion Air hrap­aði með þeim afleið­ingum að 189 létu líf­ið, benda til þess að MCAS kerfi hafi brugð­ist og toga vél­ina nið­ur, en það kerfi á að vinna gegn ofrisi. 

Margt bendir til þess að sam­bæri­legar ástæður hafi verið að baki því þegar 737 Max vél Et­hi­opian Air­lines hrap­aði 13. mars síð­ast­lið­inn með þeim afleið­ingum að 157 létu líf­ið.

Eins og greint hefur verið frá, meðal ann­ars í frétta­skýr­ingum á vef Kjarn­ans, þá hefur alþjóð­leg kyrr­setn­ing á 737 Max vélum Boeing haft víð­tæk áhrif á flug­iðn­að­inn um allan heim, og gert það að verkum að mörg flug­fé­lög sem voru með Max vélar í notk­un, eða höfðu reikna með þeim í flot­ann, hafa lent í vand­ræðum með að halda uppi þjón­ustu eins og leiða­kerfi þeirra gera ráð fyr­ir. 



Flug­­um­­ferða­stofn­un Banda­­ríkj­anna (FAA) sagð­ist í yfir­lýs­ingu 16. apríl síð­ast­lið­inn telja breyt­ing­­arn­ar sem Boeing flug­­­véla­fram­­leið­and­inn legg­ur til að gerðar verði á Boeing 737 Max far­þega­þot­un­um séu „við­eig­and­i“. 

Búist er við því að FAA muni leggja blessun sína yfir aðgerðir Boeing, áður en langt um líð­ur, og þá verður mögu­legt að not­ast við Max vélar í Banda­ríkj­un­um. Önnur flug­mála­yf­ir­völd hafa þó ekki gefið grænt ljós á notkun Max véla, og óvíst er hvenær kyrr­setn­ingu lýkur og hægt verður að nota vél­arnar aft­ur. Ljóst er að það verður ekki gert fyrr en rann­sóknum á flug­slysl­unum lýk­ur, og loka­nið­ur­stöður verða birt­ar.

Á meðan þessi staða er uppi hafa flug­fé­lög brugð­ist við með því að fella niður flug og leigja vélar í stað Max vél­anna. Mikil eft­ir­spurn hefur mynd­ast eftir leigu­vél­um, og hefur verðið farið hækk­and­i. 

Icelandair not­ast við Boeing vélar og hafa þrjár Max vélar verið teknar úr umferð í flota félags­ins. Félagið hefur veðjað á að Max vél­arnar til fram­tíðar lit­ið, og mið­ast áætl­anir félags­ins til lengri tíma litið við það. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent