Game of Thrones vinsælasti þátturinn til niðurhals

Fyrsta þætti áttundu þáttaraðar Game of Thrones, sem sýndir eru á Stöð 2, hafði verið hlaðið niður tæplega sjö þúsund sinnum á deildu.net í gær. Íslendingar eru þannig enn að notfæra sér slíkan máta til að sækja sér efni til afþreyingar.

Sistkynin Sansa, Arya og Bran Stark úr sjónvarpsþáttunum Game of Thrones.
Sistkynin Sansa, Arya og Bran Stark úr sjónvarpsþáttunum Game of Thrones.
Auglýsing

Fyrsta þætti átt­undu þáttar­aðar Game of Thro­nes, sem sýndir eru á Stöð 2, hafði verið hlaðið niður sam­tals 6.723 sinnum á nið­ur­hals­síð­unni deild­u.­net í gær en þátt­ur­inn var fyrst sýndur um síð­ustu helgi. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Enn fremur kemur fram að fyrstu þremur þátt­unum af Atvinnu­mönn­unum okk­ar, sjón­varps­þáttum Stöðvar 2 þar sem Auð­unn Blön­dal talar við íslenska atvinnu­menn í íþrótt­um, hafði verið hlaðið niður sam­tals 9.949 sinn­um.

Hall­grímur Krist­ins­son, stjórn­ar­for­maður Félags rétt­hafa í sjón­varpi og kvik­myndum (FRÍSK), segir í sam­tali við Frétta­blaðið að slíkt nið­ur­hal sé óþol­andi. „Það segir sig sjálft í svona litlu sam­fé­lagi eins og okkar að þetta eru svaka­legar töl­ur.“ Hall­grímur segir það verst þegar um íslenska fram­leiðslu er að ræða. „Efni sem unnið er af Íslend­ingum fyrir íslenska pen­inga. Þá er það auð­vitað mik­ill skað­i.“

Auglýsing

Síðan fengið að vera óáreitt í mörg ár

Nið­ur­hal sem þetta heftir fram­leiðslu á öðru íslensku efni, að mati Hall­gríms. Þegar fjöldi sem þessi sækir íslenskt efni og borgar ekki fyrir það fást minni tekjur og því er minna fjár­magn til svo hægt sé að fram­leiða meira efni. „Þessi síða er nátt­úru­lega, eins og alþjóð veit, rekin af Íslend­ingum og hefur verið sér­stak­lega nýtt af Íslend­ingum til að sækja sér íslenskt efni. Það væri auð­vitað ósk okkar að lög­reglan myndi taka sig til og rann­saka þetta af ein­hverju vit­i,“ segir Hall­grím­ur.

Hann segir jafn­framt að síðan hafi fengið að vera óáreitt í mörg ár. „Hún hefur verið kærð en lög­regla hefur aldrei tekið af skarið og rann­sakað þetta af neinu viti. Við höf­um, því mið­ur, ekki heim­ildir eða tök á að rann­saka svona. Það er ein­göngu lög­regla sem gerir það.“ Hér­aðs­dómur hefur sett lög­bann á deild­u.­net en síðan er enn aðgengi­leg og til­tölu­lega lítið vanda­mál að nálg­ast þannig efni án þess að þurfa að greiða fyrir það. Hall­grímur segir við Frétta­blaðið að þetta sé gömul saga og ný.

Nið­ur­hal á Game of Thro­nes er síður en svo ný af nál­inni en fram kom til að mynda í fréttum árið 2015 að sjón­­varps­þátta­röðin hefði trónað efst á vafasömum lista yfir mest nið­­ur­hal­að­asta sjón­­varps­efni sög­unn­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent