Forsætisnefnd Alþingis auglýsti þann 20. apríl síðastliðinn embætti skrifstofustjóra Alþingis laust til umsóknar, en nefndin ræður skrifstofustjóra Alþingis til sex ára í senn. Alls bárust tólf umsóknir en nýr skrifstofustjóri Alþingis tekur við embættinu þann 1. september næstkomandi.
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fyrrverandi dómsmálaráðherra, Bryndís Hlöðversdóttir, ríkissáttasemjara og Kjartan Björgvinsson héraðsdómari eru á meðal umsækjanda.
Auk Bryndísar, Kjartans og Rögnu sóttu átta aðrir um stöðuna: Ásthildur Magnúsdóttir, kennari. Hildur Eva Sigurðardóttir, forstöðumaður, Hilmar Þórðarson, fv. sviðsstjóri rekstrarsviðs, Inga Guðrún Birgisdóttir, mannauðsstjóri, Ingvar Þór Sigurðsson, forstöðumaður, Kristian Guttesen, aðjunkt, Sandra Stojkovic Hinic, verkefnisstjóri, Sigrún Brynja Einarsdóttir, skrifstofustjóri, Þórdís Sævarsdóttir, kennari.
Skrifstofustjóri hefur umsjón með fjárreiðum þingsins
Skrifstofustjóri stjórnar skrifstofu Alþingis, framkvæmdum á vegum þingsins og hefur umsjón með fjárreiðum þess og eignum í umboði forseta. Þingfundasvið, nefndasvið og starfsmannaskrifstofa þingsins heyra beint undir skrifstofustjóra. Skrifstofustjóri situr fundi forsætisnefndar og er forseta og nefndinni til aðstoðar í öllu er varðar stjórn þingsins. Aðsetur skrifstofustjóra er á 2. hæð Alþingishússins og á 2. hæð Skjaldbreiðar, Kirkjustræti 8. Um starf hans eru nánari ákvæði í þingsköpum Alþingis. Helgi Bernódusson hefur gegnt embætti skrifstofustjóri Alþingis frá árinu 2005 en hann lætur nú af störfum eftir áratuga starf á Alþingi.
Á vef Alþingis segir að forsætisnefnd hafi falið þremur úr sínum hóp að hafa umsjón með ráðningarferlinu fyrir hönd nefndarinnar. Undirnefndina skipa Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, og varaforsetarnir Guðjón Brjánsson og Bryndís Haraldsdóttir.
Auk þess var skipuð þriggja manna hæfnisnefnd til að fara yfir umsóknir, meta hvaða umsækjendum verður boðið í viðtal, annast viðtöl, meta umsagnir og gera tillögu til undirnefndar forsætisnefndar um þá sem hún telur hæfasta til að gegna starfinu. Hæfnisnefndina skipa Þorsteinn Magnússon, varaskrifstofustjóri Alþingis, sem er formaður, Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Kjara- og mannauðssýslu ríkisins og Hulda Ragnheiður Árnadóttir, framkvæmdastjóri. Starfsmaður nefndarinnar er Heiðrún Pálsdóttir, ritari forseta Alþingis.