Forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra kynntu sameiginlega aðgerðir stjórnvalda gegn mansali og félagslegu undirboði á ríkisstjórnarfundi í morgun. Þetta kemur fram í frétt Stjórnarráðsins í dag.
Aðgerðirnar lúta meðal annars að því að efla lagaumgjörðina og eftirlitsheimildir og að tryggja viðeigandi aðstoð og vernd fyrir fórnarlömb vinnumansals og nauðungarvinnu.
Í frétt Stjórnarráðsins segir að mansal heyri að mestu leyti undir dómsmálaráðuneytið, ef frá sé talin félagsþjónusta við þolendur og meinta þolendur mansals, en verkefni sem lúta að félagslegum undirboðum og brotum á vinnumarkaði heyri undir félagsmálaráðuneytið. Forsætisráðuneytið komi að þessari vinnu í krafti forystu- og samhæfingarhlutverks síns og í samhengi við aðgerðir stjórnvalda til stuðnings lífskjarasamningum, en í yfirlýsingu þess efnis hafi skýrt verið kveðið á um aðgerðir gegn mansali, félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði.
Óska eftir ráðgjöf
Meðal þess sem forsætisráðuneytið hefur haft forgöngu um er að óska eftir ráðgjöf frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE). Stofnunin hefur víðtæka reynslu af stefnumótun gegn mansali og alþjóðlega sérþekkingu á brotaflokknum sem mun nýtast stjórnvöldum þar sem mansal er alþjóðlegur vandi og oft tengt fjölþjóðlegum, skipulögðum glæpasamtökum.
Á vettvangi dómsmálaráðuneytisins er nú unnið að eftirfylgni með áhersluskjali stjórnvalda um aðgerðir gegn mansali og annars konar hagnýtingu. Í tengslum við þá vinnu mun dómsmálaráðherra skipa samráðshóp sem verður í senn ætlaður til eftirfylgni með aðgerðum stjórnvalda gegn mansali og til frekari stefnumótunar eftir því sem þörf krefur. Auk viðeigandi ráðuneyta og ábyrgðaraðila einstakra aðgerða verður óskað eftir tilnefningum frá aðilum sem hafa innsýn, þekkingu og reynslu á þessu sviði.
Jón Sigurðsson með yfirumsjón með aðgerðum
Samstarfshópur félags- og barnamálaráðherra um aðgerðir gegn félagslegum undirboðum og brotastarfsemi á vinnumarkaði skilaði skýrslu í janúar síðastliðnum þar sem tilgreind voru tíu lykilverkefni sem þyrfti að ráðast í. Félags- og barnamálaráðherra hefur falið Jóni Sigurðssyni, fyrrverandi ráðherra sem leiddi vinnu samstarfshópsins, að hafa yfirumsjón með því að framfylgja aðgerðunum, sem og þeim aðgerðum sem snerta félagsleg undirboð í stuðningi stjórnvalda við lífskjarasamninga.