Kynntu aðgerðir stjórnvalda gegn mansali og félagslegu undirboði

Forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og félags- og barnamálaráðherra kynntu sameiginlega aðgerðir stjórnvalda gegn mansali og félagslegu undirboði á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Verkamaður við vinnu
Auglýsing

For­sæt­is­ráð­herra, dóms­mála­ráð­herra og félags- og barna­mála­ráð­herra kynntu sam­eig­in­lega aðgerðir stjórn­valda gegn man­sali og félags­legu und­ir­boði á rík­is­stjórn­ar­fundi í morg­un. Þetta kemur fram í frétt Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Aðgerð­irnar lúta meðal ann­ars að því að efla lagaum­gjörð­ina og eft­ir­lits­heim­ildir og að tryggja við­eig­andi aðstoð og vernd fyrir fórn­ar­lömb vinnumansals og nauð­ung­ar­vinnu.

Í frétt Stjórn­ar­ráðs­ins segir að man­sal heyri að mestu leyti undir dóms­mála­ráðu­neyt­ið, ef frá sé talin félags­þjón­usta við þolendur og meinta þolendur mansals, en verk­efni sem lúta að félags­legum und­ir­boðum og brotum á vinnu­mark­aði heyri undir félags­mála­ráðu­neyt­ið. For­sæt­is­ráðu­neytið komi að þess­ari vinnu í krafti for­ystu- og sam­hæf­ing­ar­hlut­verks síns og í sam­hengi við aðgerðir stjórn­valda til stuðn­ings lífs­kjara­samn­ing­um, en í yfir­lýs­ingu þess efnis hafi skýrt verið kveðið á um aðgerðir gegn mansali, félags­legum und­ir­boðum og brota­starf­semi á vinnu­mark­aði.

Auglýsing

Óska eftir ráð­gjöf

Meðal þess sem for­sæt­is­ráðu­neytið hefur haft for­göngu um er að óska eftir ráð­gjöf frá Örygg­is- og sam­vinnu­stofnun Evr­ópu (ÖSE). Stofn­unin hefur víð­tæka reynslu af stefnu­mótun gegn man­sali og alþjóð­lega sér­þekk­ingu á brota­flokknum sem mun nýt­ast stjórn­völdum þar sem man­sal er alþjóð­legur vandi og oft tengt fjöl­þjóð­leg­um, skipu­lögðum glæpa­sam­tök­um.

Á vett­vangi dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er nú unnið að eft­ir­fylgni með áherslu­skjali stjórn­valda um aðgerðir gegn man­sali og ann­ars konar hag­nýt­ingu. Í tengslum við þá vinnu mun dóms­mála­ráð­herra skipa sam­ráðs­hóp sem verður í senn ætl­aður til eft­ir­fylgni með aðgerðum stjórn­valda gegn man­sali og til frek­ari stefnu­mót­unar eftir því sem þörf kref­ur. Auk við­eig­andi ráðu­neyta og ábyrgð­ar­að­ila ein­stakra aðgerða verður óskað eftir til­nefn­ingum frá aðilum sem hafa inn­sýn, þekk­ingu og reynslu á þessu sviði.

Jón Sig­urðs­son með yfir­um­sjón með aðgerðum

Sam­starfs­hópur félags- og barna­mála­ráð­herra um aðgerðir gegn félags­legum und­ir­boðum og brota­starf­semi á vinnu­mark­aði skil­aði skýrslu í jan­úar síð­ast­liðnum þar sem til­greind voru tíu lyk­il­verk­efni sem þyrfti að ráð­ast í. Félags- og barna­mála­ráð­herra hefur falið Jóni Sig­urðs­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra sem leiddi vinnu sam­starfs­hóps­ins, að hafa yfir­um­sjón með því að fram­fylgja aðgerð­un­um, sem og þeim aðgerðum sem snerta félags­leg und­ir­boð í stuðn­ingi stjórn­valda við lífs­kjara­samn­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent