Umræðu um þriðja orkupakkann frestað um óákveðinn tíma

Umræðu um þriðja orkupakkann sem átti að halda áfram á Alþingi í dag var frestað um óákveðinn tíma. Ólafur Ísleifsson, þingmaður Miðflokksins, segir þetta stórfínt.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Auglýsing

Umræðu um þriðja orku­pakk­ann sem átti að halda áfram á Alþingi klukkan 10.40 var frestað um óákveð­inn tíma. Þetta var gert eftir að for­ystu­menn flokk­anna sett­ust á fund í dag til að ræða fram­gang mála á Alþingi en frá þessu er greint í frétt RÚV.

For­ystu­menn flokk­anna ákváðu að halda funda­höldum áfram klukkan ell­efu og finna leiðir til að rjúfa þá flóknu stöðu sem upp er komin á Alþingi vegna mál­þófs þing­manna Mið­flokks­ins um þriðja orku­pakk­ann.

Ólafur Ísleifs­son, þing­maður Mið­flokks­ins, segir í sam­tali við Kjarn­ann þetta vera stór­fínt. „Það hefur aldrei staðið á okkur að fresta umræð­u­m,“ segir hann.

Auglýsing

Í stað þriðja orku­pakk­ans hófu þing­menn því umræðu um heil­brigð­is­stefnu til árs­ins 2030, þings­á­lykt­un­ar­til­lögu Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra. Ásmundur Frið­riks­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði und­ar­legt að kom­ast í ræðu­stól að ræða málið eftir að hafa þurft að bíða í tíu daga. Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþing­is, sagði þá að biðin væri hálfur mán­uð­ur, sam­kvæmt RÚV.

For­seti Alþingis sagði við upp­haf þing­fundar að for­ystu­menn flokka hygð­ust eiga fund klukkan ell­efu til að leita leiða til að ná sam­komu­lagi. Því varð nið­ur­staðan af fyrri fundi þeirra í morgun að víkja frá röð mála á dag­skrá. Þriðji orku­pakk­inn var því tek­inn af dag­skrá og mál sem honum tengj­ast.

Lögðu til lausn

Fjórir stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­flokk­­ar, Við­reisn, Pírat­­ar, Sam­­fylk­ingin og Flokkur fólks­ins, lögðu til fyrir tveimur dögum að flokk­­arnir á Alþingi myndu semja um afgreiðslu þeirra mála sem bíða og að inn­­­leið­ing þriðja orku­­pakk­ans, sem Mið­­flokk­­ur­inn hafði haldið uppi umræðu um dögum sam­an, yrði færð aft­­ast á dag­­skrá þessa þings.

Umræðan staðið í 134 klukku­stundir

Í frétt RÚV kemur fram að umræðan um þriðja orku­pakk­ann sé orðin sú næst­lengsta á Alþingi síðan sam­einað hafi verið í eina deild árið 1991.

Umræðan hefur staðið í 134 klukku­stundir og átta mín­út­ur. Hún er klukku­stund styttri en umræðan um Ices­ave og er orðin hálfum öðrum sól­ar­hring lengri en umræðan um EES-­samn­ing­inn. Umræðan um EES-­samn­ing­inn var lengi lang­lengsta umræðan á Alþingi og sú fyrsta sem náði því að standa yfir í hund­rað klukku­stund­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent