Með nútímatækni, eins og sýndarveruleikagleraugum, finna fleiri en áður fyrir hreyfiveiki, eins og sjó- og bílveiki. Sjálfkeyrandi bílar munu svo fjölga þeim enn frekar sem finna einkennin. Þetta kemur fram í máli Hannesar Petersen, háls-, nef- og eyrnalæknir og prófessor við Læknadeild HÍ, í nýjasta tölublaði Læknablaðsins.
„Með sýndarveruleikatækni hafa menn skapað hreyfiheim sem er svo raunverulegur að einstaklingar finna fyrir hreyfiveiki, eins og sjó- eða bílveiki, þótt þeir sitji eða standi kyrrir,“ segir hann en Hannes stendur fyrir ráðstefnu um hreyfiveiki í Hofi á Akureyri 7. til 10. júlí næstkomandi.
Hreyfiveiki er regnhlífarheiti yfir bílveiki, sjóveiki, flugveiki, geimveiki og alla viðleitni okkar mannanna við að auka ferðagetu okkar í faratæki sem getur leitt til ferðaveiki. Sjóveiki er algengust enda ýktustu hreyfingarnar. Þreyta, sundl, höfgi, ógleði, uppköst og að svitna eru helstu einkenni hreyfiveiki.
Skynjunin veldur hreyfiveiki
Hannes segir að leikjaframleiðendur hafi skoðað möguleikann á að nota sýndarveruleikagleraugu við leiki sína en spilarar hafi oft hafnað þeim vegna hreyfiveiki. Þeim finnist betra að horfa á skjáinn því þeir upplifi of mikil einkenni hreyfiveiki í gegnum gleraugun. Þeim sé óglatt og líði ekki vel.
Hannes segir fólk ekki skynja hreyfiertingu í jafnvægishluta innri eyrna í sýndarveruleika, heldur sé sjónupplifunin slík, til dæmis í bíl eða rússíbana, að viðkomandi sé nánast við það að kasta upp.
„Fyrst héldum við að skynjun í gegnum innra eyra væri mikilvægari en sjónin við sjóveiki. Nú erum við að átta okkur á að það sjónræna nægir,“ segir hann. Hreyfingin sjálf valdi því ekki hreyfiveiki heldur skynjunin. „Það er svo margt nýtt í þessu sem nútímatækni hefur fært okkur.“
Kvartað yfir heyfiveiki með sjálfkeyrandi bíla
Hannes segir að rétt eins og tölvuleikjaunnendur finni fyrir hreyfiveiki lýsi flugmenn sem þjálfa hæfni sína í flughermi sömu einkennum. „Þeir vita að hermirinn er fastur við jörð og inni í byggingu. Þótt hann sé á glussum og hreyfist lítillega er það ekkert í líkingu við flugvélina sem þeir skynja í gegnum skjái í herminum. Þetta er kallað flughermiveiki.“
Þekktir bílaframleiðendur taka þátt í umræðu um sjálfkeyrandi bíla á ráðstefnunni. „Hreyfiveiki er ein af umkvörtunum í tilraunum með sjálfkeyrandi bíla,“ segir Hannes. Þeir þyki hvikari í hreyfingum. Þá muni fólk hvorki keyra sjálft nésnúa fram á við heldur njóta samskipta við aðra í bílnum. Því séu núna vangaveltur um hvort nota megi þessa sömu tækni, sýndarveruleikann, til að koma í veg fyrir hreyfiveiki.
Hægt er að hlusta á hlaðvarp Læknablaðsins þar sem spjallað er við Hannes hér.