Syndirnar í skólpinu

Fjórfalt meira kókaín mældist í skólpi höfuðborgarsvæðisins í mars í fyrra en tveimur árum áður. Þó er ekki aðeins hægt að mæla magn fíkniefna í frárennsli heldur má einnig skoða ýmsa vísa um heilbrigði samfélagsins.

DSC00906.JPG Mynd: Bára Huld
Auglýsing

Arn­dís Sue-Ching Löve, lyfja­fræð­ingur og dokt­or­snemi við lækna­deild, segir að ekki sé aðeins hægt að mæla magn fíkni­efna í frá­rennsli heldur megi einnig skoða ýmsa vísa um heil­brigði sam­fé­lags­ins.

Arndís Sue-Ching Löve Mynd: RÚVÞetta kemur fram í nýjasta tölu­blaði Lækna­blaðs­ins en hún hefur síð­ustu fimm ár mælt fíkni­efni í skólpi hér á landi fyrir dokt­ors­verk­efni sitt sem hún vinnur á Rann­sókn­ar­stofu Háskóla Íslands í lyfja- og eit­ur­efna­fræði.

Hún segir að hægt sé að skoða umbrots­efni alkó­hóls, nikótíns, koff­íns og ýmis líf­merki sem bendi til dæmis til streitu eða sjúk­dóma.

Auglýsing

Fram kemur í grein Lækna­blaðs­ins að Arn­dís hafi síð­ast­liðin fjögur ár tekið þátt í evr­ópsku sam­starfs­verk­efni þar sem algeng fíkni­efni eru mæld í frá­rennsli 85 Evr­ópu­borga. Nið­ur­stöð­urnar hafa verið birtar af Evr­ópsku rann­sókna­mið­stöð­inni, EMCDDA, fyrir eit­ur­lyf og eit­ur­lyfjafíkn.

Reykja­vík í efsta sæti

Nið­ur­stöð­urnar sýna að fjór­falt meira kókaín mæld­ist í skólpi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í mars í fyrra en tveimur árum áður. Það vermir efsta sæti borga Norð­ur­land­anna þegar kemur að kóka­íni en það tólfta sé litið til þeirra Evr­ópu­borga þar sem fíkni­efni voru mæld í skólpi á viku­tíma­bili í fyrra. Efst er Bristol á Englandi, þá Amster­dam í Hollandi og Zürich í Sviss í því þriðja þegar kemur að kóka­íni.

Arn­dís segir þetta vera í sam­ræmi við aukn­ingu kóka­íns í öku­mönnum hér á landi.

Aukn­ing MDMA mikil um helgar

Reykja­vík er sam­kvæmt mæl­ing­unum í öðru sæti yfir mest amfetamín­magn á eftir Saar­brüc­ken í Þýska­landi, þar sem notk­unin mælist þó nærri tvö­falt meiri. Hún mæld­ist í 14. sæti yfir metam­fetamín, þar sem Erf­urt í Þýska­landi trónar á toppn­um, og 9. sæti yfir MDMA, en Amster­dam í því efsta. Arn­dís seg­ist fylgj­ast sér­stak­lega vel með þróun metam­fetamíns hér á landi en aukn­ing hefur mælst í Nor­egi og Finn­landi.

„Við fylgjum oft hinum Norð­ur­lönd­unum í þróun og viljum því sjá hvort metam­fetamín-­magn í frá­rennsli sé að aukast hér á land­i,“ segir hún. Svo sé það MDMA, einnig kallað e-töflur eða Mollý. Heild­ar­magn MDMA hafi hald­ist stöðugt milli ára, en aukn­ing sé mikil um helg­ar.

Hægt er að hlusta á hlað­varp Lækna­blaðs­ins þar sem spjallað er við Arn­dísi hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent