Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sæmdi sextán Íslendinga heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 17. júní. Meðal þeirra voru Bogi Ágústsson fréttamaður og formaður Norræna félagsins fyrir störf á vettvangi fjölmiðlunar og norrænnar samvinnu, Guðrún Ögmundsdóttir fyrir framlag í þágu mannúðar og jafnréttisbaráttu hinsegin fólks, Jakob Frímann Magnússon fyrir störf á vettvangi íslenskrar tónlistar og Halldóra Geirharðsdóttir fyrir framlag til íslenskrar leiklistar.
Auglýsing
Þeir sem hlutu fálkaorðuna í dag voru:
- Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir ljósmóðir og hjúkrunarstjóri, Kirkjubæjarklaustri, riddarakross fyrir framlag til heilbrigðis- og björgunarstarfa í heimabyggð
- Bára Grímsdóttir tónskáld og formaður Kvæðamannafélagsins Iðunnar, Reykjavík, riddarakross fyrir varðveislu og endurnýjun á íslenskum tónlistararfi
- Bogi Ágústsson fréttamaður og formaður Norræna félagsins, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi fjölmiðlunar og norrænnar samvinnu
- Guðrún Ögmundsdóttir félagsráðgjafi og fyrrverandi þingkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag í þágu mannúðar og jafnréttisbaráttu hinsegin fólks
- Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar leiklistar
- Helgi Árnason skólastjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi skóla og skáklistar ungmenna
- Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir og dósent við Háskóla Íslands, Reykjavík, riddarakross fyrir störf í þágu ljósmæðra og skjólstæðinga þeirra
- Hjálmar Waag Árnason fyrrverandi skólameistari, þingmaður og framkvæmdastjóri Keilis, Reykjanesbæ, riddarakross fyrir forystu á vettvangi skólastarfs og menntunar
- Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi íslenskar tónlistar
- Dr. Janus Guðlaugsson íþrótta- og heilsufræðingur, Álftanesi, riddarakross fyrir framlag til eflingar heilbrigðis og íþrótta eldri borgara
- Jóhanna Erla Pálmadóttir verkefnastjóri og fyrrverandi framkvæmdastjóri Textílseturs Íslands, Blönduósi, riddarakross fyrir störf í þágu safna og menningar í heimabyggð
- Jón Ólafsson fyrrverandi prófessor, Kópavogi, riddarakross fyrir rannsóknir, fræðistörf og kennslu á sviði haffræði
- Skúli Eggert Þórðarson ríkisendurskoðandi, Reykjavík, riddarakross fyrir nýjungar í stjórnun og mannauðsmálum hjá hinu opinbera
- Tatjana Latinovic deildarstjóri, formaður Kvenréttindafélags Íslands og formaður Innflytjendaráðs, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til atvinnulífs, jafnréttis og málefna innflytjenda
- Þórður Guðlaugsson vélstjóri, Kópavogi, riddarakross fyrir lífsstarf á vettvangi sjávarútvegs og björgunarafrek í mannskaðaveðri
- Þórunn Jarla Valdimarsdóttir sagnfræðingur og rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til sagnfræða og íslenskra bókmennta