Tala frambjóðenda í sveitarfélögum í kosningum sem fram fóru þann 26. maí 2018 þar sem kosning var bundin var 3.482, 1.797 karlar, eða 51.6 prósent, og 1.685 konur, eða 48,4 prósent. Kjörnir voru 420 sveitarstjórnarmenn í þessum sveitarfélögum en 82 í sveitarfélögum þar sem kosning var óbundin. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar í dag.
Alls voru kjörnir 502 sveitarstjórnarmenn á landinu öllu, 266 karlar eða 53 prósent og 236 konur eða 47 prósent. Hefur hlutfall kvenna af kjörnum fulltrúum aldrei verið hærra. Í kosningunum var 59 prósent kjörinna fulltrúa nýkjörnir en 41 prósent höfðu einnig verið kjörnir í kosningunum 2014.
Samkvæmt Hagstofunni var kosið til 72 sveitarstjórna í sveitarstjórnarkosningunum. Bundin hlutfallskosning var í 56 sveitarfélögum þar sem 99 prósent allra á kjörskrá voru búsettir og 198 framboðslistar boðnir fram. Þar af var sjálfkjörið í einu sveitarfélagi þar sem aðeins einn listi var í boði. Kosning var óbundin í 16 sveitarfélögum þar sem 1 prósent kjósenda var á kjörskrá. Á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 voru 247.943 eða 71,2 prósent landsmanna.
Kosningaþátttaka kvenna meiri en karla
Kosningaþátttaka í þeim sveitarfélögum þar sem kosning fór fram árið 2018 var 67,6 prósent, heldur meiri en þátttakan 2014, eða 66,5 prósent, sem er sú dræmasta til þessa. Kosningaþátttaka kvenna var meiri en karla og var hún breytileg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjósenda.
Þátttaka nýrra kjósenda sem sökum aldurs voru að kjósa í fyrsta sinn í sveitarstjórnarkosningum var 51,5 prósent. Þátttaka kjósenda með erlent ríkisfang var 18 prósent, rúmt 51 prósent meðal norrænna kjósenda en 15 prósent meðal annarra erlendra ríkisborgara.
Gild atkvæði voru 162.587. Auðir seðlar voru 4.225 og aðrir ógildir 774 eða samanlagt 3 prósent greiddra atkvæða.