Hlutfall kjörinna kvenna í sveitarstjórnum aldrei verið hærra

Alls voru kjörnir 502 sveitarstjórnarmenn á landinu öllu árið 2018, 266 karlar og 236 konur. Kosningaþátttaka kvenna var meiri en karla og var hún breytileg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjósenda.

Ráðhús Reykjavíkur
Ráðhús Reykjavíkur
Auglýsing

Tala fram­bjóð­enda í sveit­ar­fé­lögum í kosn­ingum sem fram fóru þann 26. maí 2018 þar sem kosn­ing var bundin var 3.482, 1.797 karl­ar, eða 51.6 pró­sent, og 1.685 kon­ur, eða 48,4 pró­sent. Kjörnir voru 420 sveit­ar­stjórn­ar­menn í þessum sveit­ar­fé­lögum en 82 í sveit­ar­fé­lögum þar sem kosn­ing var óbund­in. Þetta kemur fram í frétt Hag­stof­unnar í dag.

Alls voru kjörnir 502 sveit­ar­stjórn­ar­menn á land­inu öllu, 266 karlar eða 53 pró­sent og 236 konur eða 47 pró­sent. Hefur hlut­fall kvenna af kjörnum full­trúum aldrei verið hærra. Í kosn­ing­unum var 59 pró­sent kjör­inna full­trúa nýkjörnir en 41 pró­sent höfðu einnig verið kjörnir í kosn­ing­unum 2014.

Sam­kvæmt Hag­stof­unni var kosið til 72 sveit­ar­stjórna í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­un­um. Bundin hlut­falls­kosn­ing var í 56 sveit­ar­fé­lögum þar sem 99 pró­sent allra á kjör­skrá voru búsettir og 198 fram­boðs­listar boðnir fram. Þar af var sjálf­kjörið í einu sveit­ar­fé­lagi þar sem aðeins einn listi var í boði. Kosn­ing var óbundin í 16 sveit­ar­fé­lögum þar sem 1 pró­sent kjós­enda var á kjör­skrá. Á kjör­skrá fyrir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar 2018 voru 247.943 eða 71,2 pró­sent lands­manna.

Auglýsing

Kosn­inga­þátt­taka kvenna meiri en karla

Kosn­inga­þátt­taka í þeim sveit­ar­fé­lögum þar sem kosn­ing fór fram árið 2018 var 67,6 pró­sent, heldur meiri en þátt­takan 2014, eða 66,5 pró­sent, sem er sú dræm­asta til þessa. Kosn­inga­þátt­taka kvenna var meiri en karla og var hún breyti­leg eftir aldri, meiri meðal eldri en yngri kjós­enda.

Þátt­taka nýrra kjós­enda sem sökum ald­urs voru að kjósa í fyrsta sinn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum var 51,5 pró­sent. Þátt­taka kjós­enda með erlent rík­is­fang var 18 pró­sent, rúmt 51 pró­sent meðal nor­rænna kjós­enda en 15 pró­sent meðal ann­arra erlendra rík­is­borg­ara.

Gild atkvæði voru 162.587. Auðir seðlar voru 4.225 og aðrir ógildir 774 eða sam­an­lagt 3 pró­sent greiddra atkvæða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent