Sarkozy ákærður fyrir spillingu og mútuþægni

Fyrrum forseti Frakklands er ákærður fyrir að hafa þegið fjármagn frá Gaddafi, fyrrum forseta Líbíu.

Nicolas Sarkozy
Auglýsing

Nicolas Sar­kozy, fyrrum for­seti Frakk­lands, hefur verið ákærður fyrir spill­ingu og mútu­þægn­i. Rétt­ar­höld yfir honum munu fara fram á næstu mán­uðum í Par­ís, að því er kemur fram í frétt Le Monde.

Sar­kozy er einnig sak­aður um að hafa þegið fjár­magn frá Mou­ammar Gadda­fi, fyrrum for­seta Líb­íu, í kosn­inga­bar­átt­unni 2007.

Katar og knatt­spyrna tengj­ast mál­inu

Í gær var fyrrum for­seti UEFA, Plat­ini, hand­tek­inn. Telja frönsk yfir­völd að mögu­lega hafi Sar­kozy haft áhrif á að Plat­ini kaus Qatar sem næsta ríki til að halda heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu árið 2022.

Auglýsing
Samkvæmt frétt Gu­ar­dian hafa frönsk yfir­völd sér­stakan áhuga á hádeg­is­verði þar sem Plat­ini og Sar­kozy hitt­ust ásamt Tamim al-T­hani, þáver­andi prins og núver­andi kon­ungs, og Sheikh Hamad bin Jassim, þáver­andi kon­ungs Kat­ar.

Plat­ini hefur haldið því fram að Sar­kozy hafi viljað að hann kysi Katar sem næsta gest­gjaf­a­ríki heims­meist­ara­móts­ins í knatt­spyrnu. Plat­ini heldur því þó fram að hann hafi ákveðið að kjósa Katar áður en hann sneiddi hádeg­is­verð­inn með fyrrum for­set­an­um, kon­ung­inum og prins­in­um, að því er kemur fram í frétt Guar­di­an.

Hler­aður af yfir­völdum

Upp komst um Sar­kozy í gegnum síma­hler­an­ir, en sím­töl hans og fyrrum lög­manns hans, Thi­erry Herzog, voru hljóð­rituð af yfir­völd­um. Ásamt fyrrum for­set­anum voru Herzog og hæsta­rétt­ar­dóm­ar­inn Gil­bert Azi­bert ákærðir fyrir spill­ingu og mútu­þægni. Hinn ­síð­ar­nefndi var einnig ákærður fyrir að rjúfa þagn­areið, sam­kvæmt umfjöllun Le Monde.



Þetta er í fyrsta skipti sem fyrrum for­seti Frakk­lands hefur verið kærður fyrir spill­ingu. Lög­maður Sar­kozy, Jacqueline Laf­font, telur að ekki sé lög­legt að nota hljóð­ritun á sím­tölum Sar­kozy þar sem það brjóti í bága við lög Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu.

Leki í skiptum fyrir stöðu í Mónakó

Azi­bert, dóm­ar­inn sem áður var nefnd­ur, er sak­aður um að hafa lekið leyni­legum upp­lýs­ingum til Sar­kozy og Herzog er varðar dóms­mál sem við­kemur Sar­kozy. Azi­bert er sak­aður um að hafa reynt að hafa áhrif á dóms­málið í skiptum fyrir að vera veitt staða í Mónakó af Sar­kozy. Að lokum hlaut hann þó ekki stöð­una.

Verið er að rann­saka önnur mögu­leg lög­brot Sar­kozy. Hann er til dæmis sak­aður um að hafa farið 20,5 millj­ónum evra fram úr leyfi­legri hámarks­fjár­hæð kosn­inga­bar­átt­unnar árið 2012.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent