Innlend netverslun blómstrar - Maí veltuhæsti mánuðurinn frá upphafi

Á netinu jókst velta raf- og heimilistækja um 156,8 prósent á milli ára á meðan veltan í búðum dróst saman um 14,2 prósent.

Fataflokkun Rauða krossins
Auglýsing

Inn­lend net­verslun nam 8 millj­örðum króna í mán­uð­inum og var hlut­falls­leg aukn­ing 56 pró­sent. Maí­mán­uður er enn fremur veltu­hæsti mán­uður í inn­lendri net­verslun og net­sölu frá því Rann­sókn­ar­setur versl­un­ar­innar hóf að birta slíkar töl­ur, að því er kemur fram í til­kynn­ingu set­urs­ins.

Heild­ar­velta inn­lendra greiðslu­korta nam 69,2 millj­örðum króna í maí og jókst um 14 pró­sent miðað við apríl síð­ast­lið­inn og um 3,5 pró­sent sam­an­borið við maí­mánuð 2018.

Svartur föstu­dagur hafði áhrif

Í til­kynn­ingu Rann­sókn­ar­set­urs­ins segir að nóv­em­ber 2018 hafi metið ef ein­göngu sé litið til net­versl­unar en ekki net­sölu þjón­ustu­fyr­ir­tækja. Þá hafi verið mark­aðs­dagar líkt og Svartur föstu­dag­ur.

Auglýsing
Í til­kynn­ingu set­urs­ins segir að gögnum um korta­veltu Íslend­inga hér­lendis komi frá inn­lendum færslu­hirð­ing­ar­að­ilum korta og öðrum greiðslu­miðl­ur­um.



Innlend netverslun sem hlutfall af verslun

Stærsti ein­staki versl­un­ar­flokk­ur­inn er dag­vöru­verslun og stór­mark­aðir sem jókst um 9,7 pró­sent milli ára. Skýr­ingin á því gæti verið sam­spil góðrar grill­tíðar og að í mán­uð­inum hafi verið fimm föstu­dagar sam­an­borið við fjóra í fyrra, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

Velta í búðum dregst saman en net­verslun eykst

Sam­dráttur var í veltu í búðum í raf- og heim­il­is­tækja­sölu upp á 14,2 pró­sent milli ára. Velta net­versl­unar jókst hins vegar um 156,8 pró­sent milli ára og nam aukn­ingin 244 millj­ónum króna, að því er kemur fram í til­kynn­ing­unni.

Inn­lend velta í fata­verslun jókst bæði í búðum og á net­inu. Á net­inu var 25,8 pró­sent aukn­ing milli ára og 17,8 pró­sent í búð­um.

Hægt að versla lyf á net­inu

Nýlega leit fyrsta net­versl­unin með lyf dags­ins ljós. Það er net­verslun Garðs Apó­­teks sem hefur hlotið stað­­fest­ingu Lyfja­­stofn­unar. Hægt er nú að versla bæði lausa­­­sölu og lyf­s­­seð­ils­­skyld lyf á net­in­u. 

Í frétta­til­kynn­ing­u Apó­teks­ins sagði að net­versl­unin væri liður í fram­­tíð­­ar­­þróun apó­­teka sem muni skila sér í bættri þjón­­ustu við við­­skipta­vini og breyttu rekstr­­ar­­mó­d­eli apó­­teka.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent