Stuðningur við Borgarlínu aldrei mælst meiri

54 prósent Íslendinga eru hlynnt Borgarlínunni en um 22 prósent andvíg.

Borgarlínan
Borgarlínan
Auglýsing

Íbúar Vest­ur­bæj­ar, mið­borg­ar­innar og Sel­tjarn­ar­ness eru hlynnt­astir Borg­ar­lín­unni. Konur og háskóla­mennt­aðir eru hlynnt­ari en karlar og fólk með grunn­skóla­próf.

Aldrei hafa fleiri Íslend­ingar verið hlynntir Borg­ar­lín­unni frá því mæl­ingar hófust í byrjun árs 2018. Nú eru 54 pró­sent Íslend­inga hlynnt Borg­ar­lín­unni en um 22 pró­sent and­víg. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Mask­ínu um nýja rann­sókn á þeirra veg­um.

Auglýsing
Athyglisvert er að konur eru hlynnt­ari Borg­ar­lín­unni en karl­ar, eða 57,6 pró­sent á móti 51,2 pró­sentum karla. 28 pró­sent karla eru and­víg Borg­ar­lín­unni en ein­ungis 16 pró­sent kvenna.

Úr könnun Maskínu

69,6 pró­sent fólks á aldr­inum 30 til 39 eru hlynnt Borg­ar­lín­unni á móti 45 pró­sentum fólks 60 ára og eldri. Fólk á aldr­inum 30 til 39 ára er hlynnt­ara Borg­ar­lín­unni en fólk á aldr­inum 18 til 29 ára. Þó eru 57,7 pró­sent þess ald­urs­flokks hlynnt Borg­ar­lín­unni.

Þegar borið er saman menntun þeirra sem hlynntir eru Borg­ar­lín­unni eru 63 pró­sent háskóla­mennt­aðra hlynnt henni og 17 pró­sent and­víg. Þeir sem hafa grunn­skóla­próf eru þeir and­víg­ustu Borg­ar­lín­unni, það er 28,4 pró­sent þeirra eru and­víg­ir.

Íbúar mið­borg­ar, Vest­ur­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness jákvæð­astir

77 pró­sent íbúa mið­borg­ar­inn­ar, Vest­ur­bæjar og Sel­tjarn­ar­ness eru hlynnt Borg­ar­lín­unni. Auk þess eru 62 pró­sent íbúar Hlíða, Laug­ar­dals, Háa­leitis og Bústaða henni hlynnt. Garð­bæ­ingar eru einnig afar hlynntir Borg­ar­lín­unni, eða 71 pró­sent þeirra.

57 pró­sent Mos­fell­inga, Hafn­firð­inga og íbúa Kjal­ar­ness eru hlynnt Borg­ar­lín­unni. 56 pró­sent Breið­holts og Árbæjar eru hlynnt Borg­ar­lín­unni en 26 pró­sent þeirra and­víg og um svipað hlut­fall er að ræða í Graf­ar­vogi, Graf­ar­holti og Úlf­árs­dal.

Úr könnun Maskínu

Ein­ungis 47 pró­sent Kópa­vogs­búa eru hlynnt Borg­ar­lín­unni, 27 pró­sent þeirra eru hlynnt í með­al­lagi og 26 pró­sent and­víg.

Alls svör­uðu 884 könn­un­inni og fór hún fram 7. til 24. júní.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent