Helmingur andvígur flutningi flugvallar úr Vatnsmýri

Rúmlega 50 prósent landsmanna eru andvígir brotthvarfi flugvallarins úr Vatnsmýri en tæplega 30 prósent hlynntir samkvæmt nýrri Zenter könnun. Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Reykjavíkurflugvallar liggur fyrir á Alþingi.

Flugvöllurinn í Vatnsmýri
Flugvöllurinn í Vatnsmýri
Auglýsing

Rúm­lega helm­ingur lands­manna er and­vígur því að flug­völl­ur­inn verði færður úr Vatns­mýri. Tæp 30 pró­sent eru hins vegar hlynnt flutn­ingi flug­vall­ar­ins en 20 pró­sent svör­uðu hvorki né. Þetta kemur fram í nið­ur­stöð­u­m könn­unar sem Zenter fram­kvæmdi fyr­ir Frétta­blaðið í síð­ustu viku. ­Þings­á­­lykt­un­­ar­til­laga um þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu um fram­­tíð Reykja­vík­­­ur­flug­vall­ar liggur fyrir á Alþing­i. 

Mest­a and­stað­an ­meðal stuðn­ings­manna Mið­flokks­ins, Fram­sóknar og Flokks fólks­ins

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur fram að 36,4 pró­sent svar­enda eru mjög and­vígir því að flug­völl­ur­inn verði fluttur úr Vatns­mýr­inni. Þá segj­ast 13,6 pró­sent vera frekar and­víg flutn­ingum flug­vall­ar­ins. Aftur á móti segj­ast 17,1 pró­sent vera mjög hlynnt því að flug­völl­ur­inn sé fluttur og 9,7 pró­sent frekar hlynnt því. Þá svör­uðu 19,1 pró­sent að þau væru hvorki and­víg né hlynnt flug­vell­in­um.

Jafn­fram­t kemur fram í umfjöllun Frétta­blaðs­ins að and­staðan sé mest við flutn­ing flug­vall­ar­ins meðal stuðn­ings­manna Mið­flokks­ins, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Flokks fólks­ins. And­staðan við flutn­ing flug­vall­ar­ins er yfir 80 pró­sent meðal stuðn­ings­manna þess­ara flokka. Meiri­hluti stuðn­ings­menn ­Sjálf­stæð­is­flokks­ins eru einnig and­snúnir flutn­ingi flug­vall­ar­ins, eða alls 60 pró­sent.

Auglýsing

Þá er mestur stuðn­ingur við flutn­ing flug­vall­ar­ins úr Vatns­mýri hjá stuðn­ings­mönnum Sam­fylk­ing­ar­innar en alls 59 pró­sent segj­ast hlynnt flutn­ing­um. Þá eru stuðn­ings­menn Við­reisnar og Vinstri grænna hlynnt­ari því en and­vígir að flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýri. Þá segj­ast 33 pró­sent stuðn­ings­manna Pírata vera hlynntir flutn­ingum en 35 pró­sent and­víg. 

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar

Í mars í fyrra lögðu 23 þing­­menn úr sex ­stjórn­mála­flokk­um fram þings­á­­lykt­un­­ar­til­lögu um þjóð­­ar­at­­kvæða­greiðslu um fram­­tíð Reykja­vík­­­ur­flug­vall­­ar. Í henni fólst að kosið yrði um hvort flug­­­völl­­ur­inn eigi áfram að vera í Vatns­­­mýr­inni eða ekki. Nið­­ur­­staða slíkrar atkvæða­greiðslu yrði alltaf ráð­­gef­andi, en ekki bind­andi.

Allir þing­­menn Mið­­flokks­ins og Flokks fólks­ins voru á meðal flutn­ings­­manna. Auk þeirra voru sjö þing­­menn Sjálf­­stæð­is­­flokks á til­­lög­unni, tveir frá Fram­sókn og einn þing­maður frá VG og einn frá Píröt­um. Einu flokk­­arnir sem eiga full­­trúa á Alþingi sem ekki voru með flutn­ings­­mann á til­­lög­unni eru Sam­­fylk­ing og Við­reisn­. ­Þings­á­lykt­un­ar­til­lagan ­náði þó ekki fram að ganga.

Til­lagan var aftur lögð fram í sept­em­ber á síð­asta ári en þá lögðu sextán þing­menn úr fimm stjórn­mála­flokkum frá til­lög­una. Þing­menn úr Mið­flokkn­um, Flokki fólks­ins, Fram­sókn, Sjálf­stæð­is­flokknum og Vinstri- græn­um. Málið gekk síðan til umhverf­is- og sam­göng­u­­nefndar í mars 2019.

Á borg­­ar­ráðs­fundi í apríl síð­ast­liðnum var lögð fram umsögn borg­­ar­lög­­manns um þings­á­­lykt­un­­ar­til­lög­una. Umsögn stað­­geng­ils borg­­ar­lög­­manns í mál­inu var á þann veg að Reykja­vík­­­ur­­borg legg­ist ein­­dregið gegn því að til­­lagan verði sam­­þykkt, meðal ann­­ars vegna þess að hún skerðir stjórn­­­skrár­varðan sjálf­­stjórn­­­ar­rétt borg­­ar­inn­­ar, að slík laga­­setn­ing gengi gegn skipu­lags­á­ætlun sveit­­ar­­fé­lags­ins og væri í and­­stöðu við óskráða meg­in­­reglu stjórn­­­skip­unar um með­­al­hóf. Um­sögnin var sam­­þykkt með fimm atkvæðum í borg­­ar­ráði og send til end­an­­legrar stað­­fest­ingar hjá borg­­ar­­stjórn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent