Tæplega fjörutíu þúsund færri ferðamenn

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru 195 þúsund í júnímánuði eða um 39 þúsund færri en í júní í fyrra. Fækkun milli ára nemur 16,7 prósentum.

7DM_9623_raw_1778.JPG
Auglýsing

Brott­förum ferða­manna hefur fækkað í hverjum mán­uði frá síð­ustu ára­mót­um. Í júní voru brott­farir erlendra far­þega frá land­inu um Kefla­vík­ur­flug­völl um 195 þús­und eða alls 39 þús­und færri ferða­menn en í júní árið á und­an. Fækkun milli ára nemur 16,7 pró­sent­um. Þetta kemur fram í taln­ingu Ferða­mála­stofu og Isa­vi­a. 

Banda­rískum far­þegum fækkar um 35 pró­sent milli ára

Frá ára­mótum hafa 900 þús­und erlendir far­þegar farið frá Íslandi um Kefla­vík­ur­flug­völl sem er 12,4 pró­sent fækkun miðað við sama tíma­bil í fyrra. ­Fækkun hefur verið alla mán­uði frá ára­mót­um, í jan­úar fækk­aði brott­förum um 5,8 pró­sent, í febr­úar um 6,9 pró­sent, í mars um 1,7 pró­sent, í apríl um 18,5 pró­sent og um 23,6 pró­sent í maí.

Auglýsing

Banda­­ríkja­­menn voru fjöl­­menn­­astir í júní eða tæp­lega þriðj­ungur brott­fara. Þeim fækk­aði hins vegar um 35,1 ­pró­sent á milli ára. Þjóð­verjar voru í öðru sæti en brott­farir þeirra voru 17 þús­und tals­ins eða 6,4 pró­sent fleiri en í júní árið áður. Í þriðja sæti voru brott­farir Breta, um tíu þús­und tals­ins og fækk­aði þeim um 21,1 pró­sent á milli ára.

Færri Íslend­ingar ferðast 

Þó ­ferða­mönnum hafi fækkað mikið á und­an­­förnum mán­uðum þá hefur korta­velta ferða­manna ekki dreg­ist jafn mikið saman og fjöld­i ­ferða­manna. Þó að heild­ar­korta­velta hafi dreg­ist saman í apríl og maí þá ráð­staf­aði hver ferða­maður 28 pró­­sent fleiri krónum hér á landi í apríl en fyrir ári síðan og 30 pró­­sent fleiri kónum í maí en korta­velta á hvern ferða­­mann hefur aldrei ver­ið ­­jafn mikil og í maí. 

Þá ráð­staf­aði jafn­framt hver og einn ferða­maður mun meira í sinni eigin mynt en áður. Í apríl ráð­staf­aði hver ferða­­maður 13 pró­­sent meiru í eigin mynt en fyrir ári síðan og 15 pró­­sent meira í maí.  

Auk þess­­arar auknu eyðslu­­gleði ferða­­manna þá hefur dval­­ar­­tími ferða­­manna á land­inu lengst. Ef skráðar og óskráðar eru gistinætur teknar saman og deilt niður á fjölda ferða­­manna þá sést að hver ferða­­maður dvaldi mun lengur á land­inu í apríl og maí en fyrir ári síð­­­an. Þannig var dval­­ar­­tím­inn 19,6 pró­­sent lengri í apríl og 18,7 pró­­sent í maí, sem er nálægt sól­­­ar­hrings lengri dval­­ar­­tími.

Þessa breyt­ingu í hegð­un ­ferða­manna má að ein­hverju leyti rekja til falls WOW a­ir en sam­­kvæmt könnun Ferða­­mála­­stofu meðal erlendra ferða­­manna dvöld­u ­­ferða­­menn ­­með­­ WOW a­ir ­­skemur en aðrir ferða­­menn og eyddu minna að með­­al­tali en til dæmis ferða­­menn með­­ Icelanda­ir. Þá flutt­i WOW a­ir hlut­­falls­­lega fleiri ­­ferða­­menn ­­sem stöldr­uðu aðeins í skamma stund á land­inu án þess að gista. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent