Ragnar Þór: Ítök atvinnurekenda innan lífeyrissjóðanna engan vegin ásættanleg

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist ekki eiga von á að vera formaður lengi en segist meðal annars vilja berjast gegn „spillingunni“ sem á sér stað innan lífeyrissjóðakerfisins á meðan hann er enn við störf.

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR.
Auglýsing

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafi náð innan líf­eyr­is­sjóð­anna séu engan veg­inn ásætt­an­legt og að það hljóti að vera mark­mið verka­lýðs­hreyf­ing­unn­ar að losa sjóð­inn undan því oki. Hann segir jafn­framt að miðað við við­brögð „lobbí­ista“ við þeirri ákvörð­un VR­ að ­skipta út öllum full­trú­um VR í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna, þá sé hreyf­ingin greini­lega á réttri leið í þeirra bar­áttu. Þetta kemur fram í við­tali við Ragnar Þór í Mann­lífi í dag. 

Varn­ar­við­brögð þess sem telur sér ógnað

Í við­tal­inu fjallar Ragnar meðal ann­ars um þau hörðu við­brögð sem ákvörðun VR, um að aft­ur­kalla ­um­boð stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­manna VR í stjórn Líf­eyr­is­­­­­sjóðs verzl­un­ar­manna og sam­­­­­þykkja til­­­­­lögu um nýja stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­menn til­­­ bráða­birgða, hefur feng­ið. Hann segir að nú þegar ítökum atvinnu­rek­enda í stjórn líf­eyr­is­sjóð­anna hafi ver­ið ógn­að og þá stökkvi lobbí­istar at­vinnu­rek­enda til varn­ar. „Þetta eru varn­ar­við­brögð þess sem telur sér ógn­að,“  segir Ragn­ar.

Davíð Stef­áns­son, nýráð­inn rit­stjóra Frétta­blaðs­ins, er á meðal þeirra sem hafa gagn­rýnt Ragnar harð­lega fyrir fyrr­nefnda ákvörðun full­trúa­ráðs VR en Davíð skrif­aði leið­ara um málið fyrr í vik­unn­i. „Da­víð var ráð­inn rit­stjóri Frétta­blaðs­ins eftir að Helgi Magn­ús­son fjár­festir keypti helm­ings­hlut í blað­inu. Helg­i er fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna og einn af þeim sem stóð fyrir því að sjóð­ur­inn lagði háar upp­hæðir í Sil­icor Ma­ter­i­als í gegnum félag­ið Sunnu­velli ­sem áður­nefndur Davíð Stef­áns­son stýrði. Stefnan var að reisa kís­il­verk­smiðju í Hval­firði sem svo aldrei varð og millj­arðar hafa tap­ast án þess að skóflu væri stungið í jörð­u,“ segir Ragn­ar 

Auglýsing

Hann segir þetta vera eitt ótelj­andi dæma um „skað­væn­leg áhrif ítaka atvinnu­rek­anda í líf­eyr­is­sjóð­un­um.“ Hann segir það því hafa ekki komið á óvart að Davíð hefði ráð­ist að hans per­sónu til að gera bar­átt­u VR­ ­fyrir því að losa um þessi ítök tor­tryggi­lega. 

Ekki trú á því að vera for­maður mjög lengi í við­bót

Ragnar segir jafn­framt að bar­áttan fyrir rétt­indum launa­fólks taki aldrei enda og bendir á að þau rétt­indi sem hafi áunn­ist hafi oft verið hunsuð og gerð að eng­u. „Við erum svo oft búin að horfa upp á það að þau rétt­indi sem hafa áunn­ist með bar­áttu verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar hafa verið hunsuð og gerð að engu. Líf­eyr­is­sjóða­málin eru til dæmis besta dæmið um það. Þau ítök sem atvinnu­rek­endur hafa náð innan sjóð­anna eru engan veg­inn ásætt­an­leg og það hlýtur að vera mark­mið okkar að losa sjóð­ina undan því oki. Og miðað við þessi við­brögð lobbí­ist­anna ­sem við vorum að tala um í upp­hafi þá erum við greini­lega á réttri leið í þeirri bar­áttu, það gefur manni von.“

Jafn­framt segir hann að hann muni ekki vera lengur en átta ár sem for­mað­ur­ VR, hvernig sem allt velti. „Hef reyndar ekki trú á því að ég verði mjög lengi í við­bót, kannski bara þessi tvö ár. Hins vegar brennur enn í mér neist­inn til að berj­ast fyrir bættum hag launa­fólks og á meðan hann lifir held ég áfram, hvort sem það verður í þessu starfi eða ein­hverju öðru,“ segir Ragnar Þór. 

„Við erum því orðin þrælar eigin kerf­is“

Þá nefnir Ragnar hann myndi vilja sjá margt breyt­ast á meðan hann er enn for­mað­ur. Nefnir hann þar á meðal skerð­ingar á líf­eyri aldr­aðra og öryrkja vegna sam­spils líf­eyr­is­sjóð­anna og Trygg­inga­stofn­unar og segir að það verður koma því í gegn að þær verði lagðar af.

Auk þess nefnir hann „spill­ing­una“ inn­an­ líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins. Hann segir að líf­eyr­is­sjóð­irnir séu orðnir stærstu eig­endur fast­eigna­lána á Íslandi, stærstu eig­endur smá­sölu­versl­unar og þjón­ustu fyr­ir­tækja hér á landi. „Það þýðir að sjóð­irnir hafa beinan og óbeinan hag af háu leigu­verði, háu hús­næð­is­verði, háum vöxtum sem og verð­trygg­ingu. Sjóð­irnir hafa líka hag af lágum launum og hárri álagn­ing­u,“ segir Ragn­ar. 

„Við erum því orðin þrælar eigin kerfis sem þver­tekur fyrir að koma að sam­fé­lags­legri upp­bygg­ingu inn­viða sam­fé­lags­ins öðru­vísi en að græða sem mest á því. Það er vita­skuld gjör­sam­lega óásætt­an­legt og þeirri bar­áttu þarf að halda áfram af fullum krafti, hvort sem það verður á meðan ég sit í for­manns­sæt­inu eða ekki. Við þurfum að halda áfram að berj­ast hvernig sem allt velt­ist,“ segir Ragnar að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent