Allar flugrekstrareignir þrotabús WOW air seldar

Gengið hefur verið frá sölu á öllum eignum þrotabús WOW air tengdum flugrekstri. Fyrrverandi stjórnendur WOW air höfðu ekki aðkomu að viðskiptunum og kaupin eru einnig ótengd WAB air.

wow air
Auglýsing

Gengið hefur verið frá sölu á öllum eignum þrota­bús WOW air sem tengj­ast flug­rekstri. Sveinn Andri Sveins­son, annar skipta­stjóri þrota­bús WOW a­ir, stað­festi í sam­tali við Kjarn­ann að salan hafi átt sér stað. Sveinn Andri gat þó engar aðrar upp­lýs­ingar gefið um söl­una. 

End­ur­vekja lággjalda­flug­rekstur til og frá Íslandi

Frétta­blaðið greindi frá því dag að fjár­sterkir banda­rískir aðilar með mikla reynslu í flug­rekstri hafi keypt allar flug­rekstar­eign­ir ­þrota­bús­ins. Heim­ildir blaðs­ins herma að um sé að ræða bæði vöru- og mynd­merki WOW a­ir, WOW lén­in, flug­rekstr­ar­bæk­ur, bók­un­ar­kerfi, hug­bún­að, sölu­vagna, ­sölu­tölv­ur, ein­kenn­is­fatnað ásamt stærstum hluta vara­hluta­la­gers og verk­færa. 

Þá herma heim­ildir blaðs­ins að umfang við­skipt­anna hlaupi á hund­ruðum millj­óna króna og að fjár­hæðin hafi verið greidd með ein­greiðslu. Mark­mið ­kaup­end­anna er að end­ur­vekja lág­far­gjalda­flug­rekstur til og frá land­inu bæði til Evr­ópu og Banda­ríkj­anna á grunn­i WOW a­ir og í sam­ræmi við þá hug­mynda­fræði sem lá til grund­vallar lággjalda­flug­i WOW a­ir, sam­kvæmt Frétta­blað­inu.

Auglýsing

Kaupin eru með öllu ótengd þeim íslensku aðilum sem und­ir­búið hafa stofnun nýs lággjalda­fé­lags undir nafn­in­u WAB. Enn fremur hefur eng­in úr hópi fyrr­ver­andi eig­enda eða stjórn­enda hins fallna flug­fé­lags haft aðkomu að við­skipt­un­um. Þetta stað­festir Páll Ágúst Ólafs­son lög­maður í svari við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins.

Deila skrif­stofu­rými 

Páll Ágúst hefur haft milli­göngu um sam­skipti kaup­end­anna við þrota­búið og önnur íslensk stjórn­völd vegna við­skipt­anna. Páll Ágúst ­deilir skrif­stofu­rými með Sveini Andra, skipta­stjóra þrota­bús­ins, á Grjóta­götu 7 í Reykja­vík. Aðspurður segir Sveinn Andri, í sam­tali við Kjarn­ann, að þrjár lög­manns­stofur deili skrif­stofu­rým­inu á Grjóta­götu 7, líkt og gert er víða ann­ars stað­ar. Hann tekur fram að eng­inn sam­rekstur eigi sér stað. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent