Riaan Dreyer hefur verið ráðinn sem nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka og mun hefja störf hjá bankanum í september. Hann hefur reynslu af viðskiptalausnum og upplýsingatæknimálum fjármálafyrirtækja, að því er kemur fram í fréttatilkynningu bankans.
Áður starfaði Riaan sem forstöðumaður hugbúnaðarþróunar hjá Arion banka og við hugbúnaðarlausnir hjá Meniga. Þar áður starfaði hann við þróun viðskiptalausna hjá Standard Bank í Suður-Afríku, þar sem hann var forstöðumaður upplýsingatæknisviðs. Hann gegndi sömu stöðu hjá Liberty Life í Suður Afríku og þar áður sem ráðgjafi hjá Deloitte Consulting.
„Íslandsbanki hefur sex ár í röð hlotið verðlaun fyrir bestu þjónustuna á bankamarkaði og höldum við áfram á þeirri vegferð með nýjum stafrænum lausnum og öflugu grunnkerfi. Við erum spennt að fá Riaan til liðs við okkur en hann hefur mikla þekkingu af upplýsingatækni fjármálamarkaða og alþjóðlega reynslu sem mun nýtast okkur vel. Við hlökkum til spennandi tíma með viðskiptavinum okkar þar sem við munum kynna mikið af nýjum lausnum á næstunni sem munu einfalda bankaviðskiptin og færa okkur hratt inn í framtíðina,“ segir Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.