Jeppi prófaður á Íslandi fyrir ferð til Mars árið 2020

Prófun á Mars-Jeppa fer fram í nágrenni Langjökuls. Fjölmargir vísindamenn koma að verkefninu, þar á meðal nemendur frá Háskóla Reykjavíkur og starfsfólk Arctic Trucks.

Mars-Jeppi
Auglýsing

Verið er að prófa svo­kall­aðan Mar­s-jeppa sem nota á í leið­angri NASA til Mars árið 2020 í nágrenni Lang­jök­uls. Prófunin er í tengslum við SAND-E verk­efni kostað af Banda­rísku flug- og geim­vís­inda­stofn­un­inni, NASA. Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu Háskól­ans í Reykja­vík og Arctic Trucks Experience. 

Nem­endur í verk­fræði og tækni­fræði við nám í Háskóla Reykja­víkur eru rann­sókn­arteym­inu til aðstoðar til að finna hent­uga staði til prófana, kann­ana á rann­sókn­ar­svæð­inu með drón­um, ásamt því að veita upp­lýs­ingar um ein­stakar jarð­fræði- og veð­ur­fars­að­stæður á Íslandi.

Auglýsing
Arctic Trucks sér um flutn­ing teym­is­ins á þá afskekktu staði þar sem próf­an­irnar fara fram, og útvegar far­ar­tæki og ýmis­konar búnað og þjón­ustu fyrir rann­sókn­irn­ar, að því er segir í til­kynn­ing­unni.

Mynd: Robb Pritchard

Vís­inda­menn­irnir hafa sér­stakan áhuga á að fylgj­ast með breyt­ingum á eðl­is- og efna­fræði­legum eig­in­leikum jarð­vegs þegar hann berst með vatni og vind­um. Það er meðal þeirra ástæðna að próf­an­irnar fara fram nærri jök­ul­rönd Lang­jök­uls því þar er að finna far­vegi í sand­inum eftir vatn sem kemur undan jökl­in­um, sem minna á far­vegi á Mars, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni. Sand­ur­inn er jafn­framt basalt sandur sem er líkur sand­inum á Mars.

Mynd: Robb Pritchard

Mar­s-jepp­inn tekur nú sýni á þremur stöðum og eru gögn og nið­ur­stöður þeirra nýttar í sjálf­stýr­ingu jeppans. Jepp­inn nýtir vél­nám og gervi­greind til þess að meta umhverfið sem keyrt er um. Jepp­inn verður lát­inn aka sjálfur og meta umhverfið án aðkomu manna en einnig verður kann­aður væn­leiki þess að nota dróna til að skanna svæðið sem fram undan er, líkt og til stendur að gera í leið­angri NASA til Mars á næsta ári.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent