Corbyn og May takast á á síðasta degi May

Theresa May segir Jeremy Corbyn mega skammast sín fyrir að hafa kosið gegn frumvarpi hennar um Brexit. Jafnframt ætti hann að segja af sér.

h_53575420.jpg
Auglýsing

Ther­esa May svar­aði í síð­asta skipti fyr­ir­spurnum frá þing­mönnum sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands í dag. Til harðra orða­skipta kom á milli May og Jer­emy Cor­byn, ­for­manns Verka­manna­flokks­ins. May sagði að Cor­byn ætti að skamm­ast sín fyrir að hafa kosið gegn Brexit samn­ingi hennar og að hann ætti að segja af sér­. „­Sem ein­hver sem veit hvenær sé hennar tími til að gef­ast upp, sting ég upp á að Cor­byn átti sig á því að nú sé hans tími til að hætta runn­inn upp,“ sagði May. 

Cor­byn þakk­aði May fyrir þjón­ustu hennar fyrir almenn­ing. Síðan sótti hann hart að May og spurði hvort hún harm­aði ástand almenn­ings í Bret­landi, þar sem barna­fá­tækt hefði aukist, glæpum fjölgað sem og heim­il­is­laus­um. May svar­aði að nú væru börn í betri skól­um, meiri atvinnu­þátt­taka væri í Bret­landi auk þess sem aðstæður almenn­ings hefðu batn­að. 

Auglýsing
Corbyn vill að kosið verði á þing að nýju svo breskur almenn­ingur geti kosið sinn eig­inn for­sæt­is­ráð­herra, ekki að keflið um for­sætið fari ein­ungis á milli leið­toga Íhalds­flokks­ins. 

Boris nýr for­sæt­is­ráð­herra

Í gær réð­ust úrslitin um nýjan for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Barist var um ráð­herra­stól­inn á milli tveggja fram­­bjóð­enda, Boris John­­son og Jer­emy Hunt. Til­­kynnt var um kjörið á vef BBC. Fyrir úrslitin var Boris John­­son tal­inn lík­­­legri til að hreppa hnossið og verða for­­sæt­is­ráð­herra.

­Boris hlaut 92.153 atkvæði og Jer­emy 46.656 atkvæði, alls kusu 87,4 pró­­sent með­­lima Íhalds­­­flokks­ins. ­Boris þakk­aði Ther­esu May fyrir starf sitt og Jer­emy Hunt fyrir góða kosn­­inga­bar­áttu. Hann sagði almenn­ing jafn­­framt hafa trú á sér og Íhalds­­­flokknum að geta sam­eina land­ið, halda Brexit til streitu og sigra Jer­emy Cor­­byn.

Í dag mun Boris John­son taka við kefl­inu og mynda nýja rík­is­stjórn og Ther­esa May mun fara á fund drottn­ingar í dag og biðj­ast lausnar frá emb­ætti sínu. Ther­esa May seg­ist munu áfram verða þing­maður og að hún sé ánægð að ein­hver sem hafi verið í hennar rík­is­stjórn muni taka við kefl­in­u. 

Halda þurfi Cor­byn frá rík­is­stjórn

Ther­esa óskaði Boris til ham­ingju með sig­­ur­inn í færslu á Twitt­er. Hún sagði einnig að nú þurfi að vinna að því að halda Jer­emy Cor­­byn, frá rík­­is­­stjórn. 

Cor­­byn segir í Twitt­er-­­færslu að John­­son hafi ekki unnið sér inn stuðn­­ing landa sinna. „Boris John­­son hefur fengið stuðn­­ing færri en 100.000 með­­lima Íhalds­­­flokks­ins með því að lofa lækkun skatta fyrir hina ríku, með því að gefa sig út fyrir að vera vinur banka­­manns­ins og ýta á eftir eyð­i­­leggj­andi No Deal Brex­it,“ skrifar hann.

Hann telur að No Deal Brexit muni þýða fækkun starfa, hækkun vöru­verðs og auka líkur á að heil­brigð­is­­þjón­usta muni vera seld til banda­rískra fyr­ir­tækja með hjart­­fólgnum samn­ingi við for­­seta Banda­­ríkj­anna, Don­ald Trump. Cor­­byn segir jafn­­framt að fólkið í Bret­landi eigi að ákveða hver verði for­­sæt­is­ráð­herra lands­ins í almennum kosn­­ing­­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent