Guðlaugur Þór gefur lítið fyrir samanburð á Trump og Boris

Utanríkisráðherra Íslands mærir nýjan forsætisráðherra Bretlands og segir ólíku saman að jafna, þeim Trump og Boris.

Guðlaugur Þór Þórðarson
Guðlaugur Þór Þórðarson
Auglýsing

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra gefur lítið fyrir sam­an­burð á Don­ald Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, og Boris John­son, nýjum for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, í við­talið í Bít­inu á Bylgj­unni í morg­un.

Hann segir að ólíku sé saman að jafna, þegar litið er á þessa tvo stjórn­mála­menn. „Trump hefur aldrei verið í stjórn­málum og hefur stutt annan stjórn­mála­flokk en hann er í núna mjög lengi og kemur allt ann­ars staðar að. Hann er með aðra nálgun en maður sér hjá hefð­bundnum stjórn­mála­mönn­um,“ segir utan­rík­is­ráð­herra.

Guð­laugur Þór skilur ekki hvernig fólk getur stillt þeim Trump og John­son upp sam­an. „Trump hefur til dæmis lagt áherslu á herð­ingu í inn­flytj­enda­málum – þú finnur ekki slíkt hjá Boris John­son – og það sem menn skil­greina oft sem popúl­isma. Boris John­son er búinn að vera í stjórn­málum í ára­tugi og er frjáls­lyndur íhalds­mað­ur. Hann hefur til dæmis verið borg­ar­stjóri í London þar sem hann vann London, sem á ekki að vera hægt fyrir íhalds­mann, og komst hann mjög vel frá því verk­efn­i.“

Auglýsing

Prýð­is­fólk í nýju rík­is­stjórn­inni

­Guð­laugur Þór greinir frá því að honum hafi fund­ist mjög gott að starfa með John­son þegar hann gegndi stöðu utan­rík­is­ráð­herra. Hann segir að John­son kunni að slá á létta strengi.

„Hér fer ekki á milli mála að hér er mjög hæfur stjórn­mála­maður á ferð­inni með ákveðna sýn á hvert hann vill fara. Hann er óhefð­bund­inn að mörgu leyti og það held ég að sé í fínu lag­i,“ segir hann.

Jafn­framt bætir Guð­laugur Þór því við að framundan bíði John­son gríð­ar­lega erfitt verk­efni og að nýi for­sæt­is­ráð­herr­ann leggi ekki ein­ungis áherslu á Brex­it. Hann segir enn fremur að mikið sé af prýð­is­fólki í nýju rík­is­stjórn John­son sem hann hafi einnig kynnst í gegnum tíð­ina.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent