Demókratar tókust á í beinni útsendingu

Hart var tekist á í kappræðum frambjóðenda Demókrata um forsetaefni flokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2020. Bernie Sanders og Elizabeth Warren áttu sviðsljósið í gær, en í kvöld mun seinni helmingur frambjóðenda takast á.

Bernie Sanders, einn forsetaframbjóðenda Demókrata
Bernie Sanders, einn forsetaframbjóðenda Demókrata
Auglýsing

Fram­bjóð­endur Demókrata fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum árið 2020 tók­ust á í beinni útsend­ingu í gær. Fyrri helm­ingur fram­bjóð­enda Demókrata tókst á í gær og mun seinni helm­ingur fram­bjóð­end­anna takast á í kvöld.

Öll spjót beindust að Bernie Sand­ers og Eliza­beth War­ren sem hafa mest fylgi þeirra sem tóku þátt í kapp­ræð­unum í gær. Mörg hver þeirra sögðu að Sand­ers og War­ren lof­uðu upp í erm­ina á sér með því að lofa ókeypis heil­brigð­is­þjón­ustu fyrir Banda­ríkja­menn. 

Auglýsing
Warren og Sand­ers náðu þó að kom­ast hjá því að takast beint á við hvort ann­að, þrátt fyrir að vera séð sem helstu keppi­nautar hvors ann­ars. Í stað­inn lögðu þau bæði áherslu á að ná til ungs fólks og kjós­enda sem ekki séu hvít­ir. Þau lögðu einnig áherslu á að fram­bjóð­andi demókrata þyrfti að hafa skýra og rót­tæka sýn fyrir Banda­rík­in. 

Helsti gagn­rýn­andi War­ren og Sand­ers var John Dela­ney sem sak­aði tvíeykið um að hafa slæma stefnu­skrá, lofi öllu fögru og not­ist við „æv­in­týra hag­fræði“ sem muni valda því að Trump verði aftur for­set­i. 

War­ren og Sand­ers fengu mestan tíma til að tala í kapp­ræð­unum í gær. War­ren tal­aði í alls 18 mín­útur og 33 sek­úndur en Sand­ers í 17 mín­útur og 45 sek­únd­ur. 

Trump í kast­ljós­inu

Meðal helsta umfjöll­un­ar­efnis kvölds­ins var hvers konar fram­bjóð­andi væri nógu sterkur til að fara í fram­boð á móti Trump.

Pete Buttigieg, einn fram­bjóð­end­anna, upp­skar mikið lófa­klapp við orð sín að sama hvort næsti fram­bjóð­andi demókrata væri vinstri­maður eða íhalds­samur þá myndu Repúblík­anar halda uppi þeim áróðri að fram­bjóð­and­inn væri öfga-sós­í­alisti. Því væri eins gott að berj­ast fyrir almennri ókeypis heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mari­anna Willi­am­son, höf­und­ur, spír­it­isti og einn fram­bjóð­end­anna, sótti hart að gagn­rýnendum War­ren og Sand­ers. Hún sagð­ist ekki skilja hvers vegna þau væru Demókratar þar sem þeim þyki rangt að nota verk­færi rík­is­ins til að hjálpa fólki. Willi­am­son var­aði einnig við „myrkum öfl­um“ sem Trump væri að vekja upp í Banda­ríkj­un­um. 

Búist við hörðum átökum í kvöld

CNN, sjón­varps­stöðin sem varpar kapp­ræð­unum beint, skipti fram­bjóð­end­unum í tvo hluta með því að draga nöfn þeirra af handa­hófi. Áður var þó nöfnum fram­bjóð­end­anna sem hafa for­ystu, það eru nöfn Sand­ers, War­ren, Biden og Harris, tekin frá til þess að ekki væru allir fram­bjóð­end­urnir sem hafa for­ystu á sama kvöld­i. 

Í kvöld munu einmitt Jos­eph R. Biden og Kamala Harris vera meðal kapp­ræðu­manna. Í síð­ustu kapp­ræðum tók­ust þau harka­lega á, sér­stak­lega um mál­efni minni­hluta­hópa. Búist er við svip­uðum átökum í kvöld.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent