Stjórn VR samþykkti að fara í stríð við smálánafyrirtækin

Á stjórnarfundi í VR í kvöld var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum að fjármagna baráttu neytenda gegn smálánafyrirtækjum og þeim sem innheimta kröfur þeirra. Lántakar verða hvattir til þess að hætta að borga af smálánum.

1. maí 2019 - VR
Auglýsing

Stjórn stétt­ar­fé­lags­ins VR sam­þykkti í kvöld, með öllum greiddum atkvæð­um, að ger­ast fjár­­hags­­legur bak­hjarl neyt­enda í bar­átt­unni gegn smá­lán­­um. 

Í því mun fel­­ast að VR, í sam­­starfi með Neyt­enda­­sam­tök­un­um, mun leggja út fyrir kostn­aði vegna lög­­fræð­i­vinnu og dóms­­mála sem þarf að höfða til að koma í veg fyrir að smá­lána­­fyr­ir­tæki og þeir sem sinna inn­­heimtu fyrir þau geti haldið áfram að inn­­heimta okur­vexti frá lán­tök­­um. 

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að Ragnar Þór Ing­­ólfs­­son, for­­maður VR, myndi leggja fram til­lögu þess efnis fram á fund­in­um. Hann sagði í sam­tali við Kjarn­ann að mark­miðið með til­lög­unni væri að algjört stöðvun verði á greiðslum á öðru en höf­uð­stól til smá­lána­­fyr­ir­tækja eða inn­­heimt­u­­fyr­ir­tækja sem starfi fyrir þau. 

Auglýsing
Fyrstu skrefin verði að hvetja fólk til að hætta að greiða af lánum sem séu ólög­­leg. Þá verði fyr­ir­tæk­inu Almennri inn­­heimtu ehf., sem hefur séð um að rukka inn smá­lána­skuld­ir, og for­svar­s­­mönnum þess stefnt. „Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem við erum að fara í skít­verkin eftir að lög­­gjaf­inn bregst. Fólkið sem er að lenda í klónum á þessum fyr­ir­tækjum fær að finna að það hefur ein­hvern bak­hjarl. Það mun breyta mjög miklu gagn­vart þeim.“

Stuðn­­ingur VR mun ná til allra smá­lána­­taka sem þurfi á honum að halda, ekki ein­ungis félags­­­manna VR. Verið er að meta kostn­að­inn við aðgerð­ina en fyrir liggja ákveðna hug­­myndir um kostnað við fyrstu skref og við að halda úti lög­­­manni til að taka við fyr­ir­­spurnum frá þeim sem hyggj­­ast nýta sér aðgerð­ina. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent