WOW air átti þrjár milljónir á reikningnum þegar það fór í þrot

Undir eitt prósent af 151 milljarða kröfum í bú WOW air munu fást greiddar miðað við eignarstöðu. Riftunarmál hafa verið höfðuð og verið er að skoða hvort löglegt hafi verið að WOW air greiddi húsaleigu fyrir Skúla Mogensen í London fyrir 37 milljónir.

Skúli Mogensen
Auglýsing

WOW air var orðið ógjald­fært um mitt síð­asta ár, áður en skulda­bréfa­út­boð félags­ins sem átti að rétta við rekstur þess hófst. Áætl­anir félags­ins voru auk þess ófull­nægj­andi og gáfu ekki raunsanna mynd af rekstri né efna­hagi WOW air. Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu Deloitte sem unnin var á mál­efnum WOW air fyrir skipta­stjóra þrota­bús félags­ins, en inni­hald hennar var kynnt á skipta­fundi sem hófst klukkan 13 í dag. Við­skipta­blaðið greinir frá. 

Í frétt blaðs­ins segir einnig að þátt­taka Skúla Mog­en­sen í skulda­bréfa­út­boð­inu haustið 2018 virð­ist hafa verið fjár­mögnuð með láni frá Arion banka. Ekki sé víst að öðrum þátt­tak­endum í útboð­inu hafi verið kunn­ugt um það. 

Við­skipta­blaðið greinir frá því að 1,1 millj­arður króna sé til í búinu en heild­ar­kröfur í það eru 151 millj­arður króna. Engar líkur eru á því að nokkuð fáist upp í 138 millj­arða króna almennar kröf­ur. Þrjár millj­ónir króna voru til á reikn­ingi WOW air þegar félagið fór í þrot. 

Auglýsing

Þegar er búið að höfða rift­un­ar­mál á hendur Tít­an, fjár­fest­inga­fé­lagi Skúla Mog­en­sen, upp á 108 millj­ónir króna og skipta­stjórar eru að skoða hvort hægt sé að rifta greiðslu á 37 millj­ónum króna sem WOW air stóð undir vegna húsa­leigu íbúðar Skúla Mog­en­sen í London. 

Flaug hátt en brot­lenti með látum

Eftir mik­inn upp­­­gang árum saman lenti íslenska lág­far­gjald­­ar­flug­­fé­lagið WOW air í veru­­legum vand­ræð­um í fyrra. Skulda­bréfa­út­­­­­boð upp á 50 millj­­­ónir dala (um sex millj­­­arða króna á gengi dags­ins í dag) sem félagið fór í í sept­­­em­ber 2018 dugði ekki til að laga stöð­una.

Í kjöl­farið var reynt að selja WOW air til Icelandair (tvisvar) og Indigo Partners. Þau áform gengu ekki eft­­­ir. Síð­­­asta til­­­raun með Icelanda­ir, sem stóð yfir seint í mars 2019, fór fram á þeim for­­­sendum að WOW Air væri fyr­ir­tæki á fallandi fæt­i. 

Til að slíkar for­­­sendur haldi, en þær heim­ila til dæmis að sam­keppn­is­­­legum áhrifum sam­runa er vikið til hlið­­­ar, þá þarf að liggja fyrir að eng­inn raun­hæfur mög­u­­­leiki sé á því að aðrir kaup­endur séu til stað­­­ar.

Íslenska ríkið taldi sig ekki hafa neinar for­­sendur til að ganga inn í rekstur WOW air. Og að morgni 28. mars 2019 fór félagið í þrot.

Afdrifda­ríkt skulda­bréfa­út­boð

Skulda­bréfa­út­boðið í sept­em­ber á eftir að reyn­ast örlaga­ríkt. Skúli keypti sjálfur skulda­bréf fyrir 5,5 millj­­­ónir evra í út­­­boð­in­u. Aðrir sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­­­boð­inu voru inn­­­lend fjár­­­mála­­fyr­ir­tæki og erlendir fjár­­­festar og sjóð­­ir. Þá keyptu tveir sjóð­ir í stýr­ing­u GAMMA keyptu sam­an­lagt skulda­bréf fyrir tvær millj­­ónir evra, annar þó stærri hlut­ann eða fyrir 1,8 millj­­ónir evra. Kvika banki lagði svo eina milljón evra í útboð­ið. 

Banda­ríska fjár­­­fest­inga­­fé­lag­ið Eaton Vance var stærsti ein­staki kaup­and­inn í skulda­bréfa­út­­­boð­inu og keyptu þrír vog­un­­ar­­sjóðir félags­­ins sam­tals skulda­bréf fyrir 10 millj­­ónir evra og nam fjár­­­fest­ing Eaton Vance því um 20 pró­­sent af heild­­ar­um­fangi útboðs­ins. Ýmsir evr­­ópskir fjár­­­fest­ing­­ar­­sjóð­ir, alls 20 tals­ins, keyptu svo skulda­bréf fyrir sam­an­lagt 11,4 millj­­ónir evra. Norski líf­eyr­is­­sjóð­­ur­inn MP Pen­­sjon lagði þeirra mest til, eða 2 millj­­ónir evra. Sjóður sænska bank­ans Swed­­bank, sem stýrt er frá­­ Lúx­em­­borg, lagði svo til 1,5 millj­­ónir evra og sænska sjóð­­stýr­ing­­ar­­fyr­ir­tæk­ið Peak AM lagði til sömu fjár­­hæð. Aðrir evr­­ópskir fjár­­­festar lögðu minna til, eða á bil­inu 0,1-1 milljón evr­a. 

Frá þessu var meðal ann­ars greint í Í bók Stef­áns Ein­­ars Stef­áns­­sonar, við­­skipta­­rit­­stjóra Morg­un­­blaðs­ins, sem ber nafnið WOW – Ris og fall flug­­­fé­lags og kom út í maí. Þar kom einnig fram að félag í eigu Björg­­ólfs Thors Björg­­ólfs­­son­­ar, Reliquum, hefði keypt fyrir um þrjár millj­ónir evra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent