„Það er ekki rétt að ég hafi fengið milljarða greiðslur út úr WOW air.“ Þetta er meðal þess sem Skúli Mogensen segir í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla í morgun vegna umfjöllunar um málefni WOW air síðustu daga. Þar neitar hann því einnig staðfastlega að WOW air hafi verið ógjaldfært um mitt ár 2018.
Hann segist aldrei hafa skorast undan sinni ábyrgð í hvernig fór fyrir WOW air og muni þurfa að búa við það alla tíð. „Ég mun hins vegar aldrei fallast á það að ég og mitt fólk höfum ekki unnið af heilindum við uppbyggingu WOW air allt fram á síðasta dag.“
Á skiptafundi kröfuhafa WOW air sem fram fór síðastliðinn föstudag kom meðal annars fram að WOW air var orðið ógjaldfært um mitt síðasta ár, áður en skuldabréfaútboð félagsins sem átti að rétta við rekstur þess hófst. Áætlanir félagsins voru auk þess ófullnægjandi og gáfu ekki raunsanna mynd af rekstri né efnahagi WOW air.
Mótmælir riftun
Þegar er búið að höfða riftunarmál á hendur Títan, fjárfestingafélagi Skúla Mogensen, upp á 108 milljónir króna vegna greiðslu frá Cargo Express, dótturfélagi WOW air til Títan, og skiptastjórar eru að skoða hvort hægt sé að rifta greiðslu á 37 milljónum króna sem WOW air stóð undir vegna húsaleigu íbúðar Skúla Mogensen í London.
Skúli segir það ekki rétt að hann hafi fengið milljarða greiðslur út úr WOW air. „Þar hefur sérstaklega verið nefnd sala Títan til WOW air á kauprétti á fjórum flugvélum fyrir 1 milljarð og sagt að Títan hafi fengið umræddan kauprétt ókeypis. Þetta er fráleitt enda ekkert frítt í heimi flugvéla. Hið rétta er að Títan fékk umræddan kauprétt gegn því að ábyrgjast allar greiðslur WOW air í tíu ár upp á tugi milljarða vegna umræddra kaupa. Þetta var skilyrði af hálfu flugvéla leigandans. Það skal líka tekið fram að Títan fékk ekki umræddan milljarð í reiðufé heldur að mestu leyti í formi fleiri hlutabréfa í WOW air. WOW air seldi umræddar flugvélar til Air Canada gegn greiðslu í reiðufé og því augljóslega rangt að tala um að engin verðmæti hafi skapast eða átt sér stað.“
Varðandi riftun skiptastjóra á greiðslu Cargo Express til Títan segir Skúli að þeirri riftun hafi verið mótmælt harðlega „enda teljum við alveg skýrt að WOW air öðlaðist aldrei eignarrétt til arðgreiðslunnar frá Cargo Express. Arðgreiðslan var alltaf skilgreind eign Títan þegar Cargo Express var selt WOW air og átti þar af leiðandi alltaf að renna til Títan en ekki WOW air.“
Varðandi húsnæðið í London sem WOW air greiddi 37 milljónir króna í leigu fyrir segir Skúli að þetta hafi verið liður í opnun á nýrri starfsstöð/Hub í London eða Dublin og jafnframt hafi WOW air verið að skoða mögulega skráningu á markaði í London. „Hvort tveggja kallaði á verulega viðveru forstjóra í London. WOW air skilaði yfir 4 milljörðum í hagnað árið 2016 og því voru þessi áform eðlilegt skref í áframhaldandi uppbyggingu WOW air á þeim tíma og ekkert óeðlilegt við það að félagið skyldi leigja húsnæði fyrir forstjóra félagsins í þeim tilgangi að sinna þeim verkefnum.“
Neitar því að WOW air hafi verið ógjaldfært um mitt síðasta ár
Skúli fjallar einnig um frægt skuldabréfaútboð WOW air, sem lauk í september í fyrra, í yfirlýsingunni. Skúli keypti sjálfur skuldabréf fyrir 5,5 milljónir evra í útboðinu. Aðrir sem tóku þátt í skuldabréfaútboðinu voru innlend fjármálafyrirtæki og erlendir fjárfestar og sjóðir. Þá keyptu tveir sjóðir í stýringu GAMMA keyptu samanlagt skuldabréf fyrir tvær milljónir evra, annar þó stærri hlutann eða fyrir 1,8 milljónir evra. Kvika banki lagði svo eina milljón evra í útboðið. Skiptastjórar WOW air telja að Arion banki hafi fjármagnað þátttöku Skúla.
Velgengnin tafði skráningu
Í niðurlagi yfirlýsingar sinnar segir Skúli að það sé ljóst að enginn stofni flugfélag og leggi því til marga milljarða króna nema að viðkomandi sé bjartsýnn og hafi trú á verkefninu. „Þegar við fórum af stað með WOW air höfðu fáir trú á því að okkur myndi takast ætlunarverkið, að byggja hér upp flugfélag og vörumerki sem vakti heimsathygli og myndi flytja milljónir ferðamanna til og frá Íslandi. WOW air skilaði hagnaði mun fyrr en nokkurn óraði fyrir og var afkoman jákvæð um rúma fjóra milljarða árið 2016. Þessum mikla og góða árangri fyrstu árin er ekki síst þeim frábærum hópi starfsfólks að þakka sem lagði nótt við dag að byggja WOW air upp. Ég er óheyrilega stoltur af þessum hóp og því sem við áorkuðum þvert á allar spár. Það má til sanns færa að þessi mikla velgengni sem WOW air naut á fyrstu árum sínum og þá sérstaklega 2015 og 2016 með ört stækkandi flota, þar með talið breiðþotunum sem gengu mjög vel fyrsta árið hafi átt sinn þátt í að það fór sem fór. Þessi mikla velgengni gerði það nefnilega að verkum að ég dró það að skrá félagið og/eða sækja nýtt hlutafé.
Eftir á hefði það klárlega verið skynsamlegra að fá inn fleiri hluthafa og styrkja þannig félagið og draga úr því hversu háð WOW air var mér og mínum félögum. En það er nauðsynlegt að hafa þessa velgengni líka í huga þegar ákvarðanir sem teknar voru í aðdraganda falls WOW air eru skoðaðar. Við höfðum áður lent í ólgu sjó en ávallt tekist að komast í gegnum þær raunir og orðið sterkari fyrir vikið. Það var því aldrei nokkur vafi í mínum huga að við myndum klára þetta verkefni og komast aftur í gegnum þær erfiðu ytri aðstæður sem við lentum í síðastliðinn vetur.
Ég hef aldrei skorast undan minni ábyrgð í hvernig fór og mun þurfa að búa við það alla tíð. Ég mun hins vegar aldrei fallast á það að ég og mitt fólk höfum ekki unnið af heilindum við uppbyggingu WOW air allt fram á síðasta dag.“