Embætti ríkissaksóknara hefur áfrýjað hinu svokallaða CLN-máli til Landsréttar. Þetta staðfestir Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, við Kjarnann.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg, voru sýknaðir í CLN-málinu í héraðsdómi Reykjavíkur í júlí.
Í málinu eru Hreiðar Már, Sigurður og Magnús ákærðir fyrir lán til Chesterfield United Inc., Partridge Management Group S.A. og eignarhaldsfélaga þeirra, samanlagt um 510 milljónir evra, eða sem nemur um 70 milljörðum króna á núverandi gengi. Í ákæru var því haldið fram að við lánveitinguna hafi ýmsar reglur Kaupþings banka hf. verið brotnar.
CLN-málið hefur hringlast í dómskerfinu þar sem í fyrstu atrennu voru allir ákærðu sýknaðir fyrir héraðsdómi, málinu var síðar aftur áfrýjað til Hæstaréttar en nýjar upplýsingar um að Deutsche Bank í London hefði greitt þrotabúi Kaupþings háar fjárhæðir bárust áður en það var tekið fyrir í Hæstarétti að nýju. Hæstiréttur taldi að rannsaka þyrfti málið betur og var því sýknudómurinn í héraði ómerktur og vísað til löglegrar meðferðar á ný. Héraðsdómur vísaði því frá og sú niðurstaða var kærð til Landréttar sem vísaði því aftur í hérað. Þar voru hinir ákærður sýknaðir í júlí.
Samkomulag við Deutsche Bank breytti málinu
Með greinargerð ákæruvalds til Hæstaréttar í haustið 2017 fylgdi samkomulag, sem gert hafði verið 12. desember 2016 milli Kaupþings ehf. sem er félag sem sér um umsýslu eigna Kaupþings banka hf. eftir að slitum á bankanum lauk, og Deutsche Bank í London.
Með samkomulaginu luku aðilar þess ágreiningi sem rekinn hefur verið fyrir ýmsum dómstólum um kröfur Kaupþings ehf. á hendur Deutsche Bank AG um greiðslur vegna þeirra lánshæfistengdu skuldabréfa sem ákæra í málinu tekur til.
Með samkomulaginu skuldbatt bankinn sig til þess að greiða Kaupþingi ehf. 212,5 milljónir evra gegn því að fallið verði frá málarekstrinum.
Fram kom einnig að annað samkomulag með áþekku efni hafi verið gert við félögin Chesterfield United Inc. og Partridge Management Group SA, en þau voru kaupendur að þeim lánshæfistengdu skuldabréfum sem um ræðir í ákæru og þágu beint eða óbeint lán til þess frá Kaupþingi banka hf.
Sá horfni fundinn og því ekkert mannshvarf
Fjallað var um efnisatriði þessarar formhliðar málsins á vef Hæstaréttar á sínum tíma. Þar sagði: „Það er skilyrði þess að sakfellt verði fyrir umboðssvik samkvæmt 249. gr. almennra hegningarlaga að ákærður maður hafi haft tiltekna aðstöðu til þess að skuldbinda annan mann eða lögaðila, að hann hafi misnotað þessa aðstöðu sína og með því valdið þeim, sem hann skuldbatt, verulegri fjártjónshættu. Þar sem ákæra í málinu er reist á þeim grundvelli að lánin sem Kaupþing banki hf. veitti eignarhaldsfélögum þeim sem í ákæru greinir, samtals að fjárhæð 510.000.000 evrur, hafi ekki greiðst til baka og séu Kaupþingi banka hf. glötuð, en nú hefur verið lagt fram samkomulag sem felur í sér að Deutsche Bank AG hefur skuldbundið sig til að greiða 425.000.000 evrur af þeirri fjárhæð hefur Hæstiréttur tekið ákvörðun um að nauðsynlegt verði að sakamálið gegn ákærðu verði í fyrstu umferð að minnsta kosti flutt um tvö atriði, sem lúta að formi þess.“
Þegar málið var tekið fyrir í héraðsdómi fyrr í sumar fullyrti Hreiðar már að eftir að samkomulagið milli Deutsche Bank og Kaupþings hafi verið gert lægi ljóst fyrir að Kaupþing hefði ekki orðið fyrir tjóni af völdum viðskiptanna. Í frétt RÚV um málið var eftirfarandi haft eftir honum: „Ég vona að ég sé ekki ómálefnalegur en þetta er svona eins og maður yrði ákærður fyrir mannshvarf. Svo finnst sá horfni og það varð ekkert mannshvarf. Og samt myndi maður sitja í dómssal ákærður fyrir hvarf.“