Samtök grænkera á Íslandi hafa sent út áskorun til umhverfisráðherra, ríkisstjórnar og sveitarfélaga um að auka vægi grænkerafæðis í skólamötuneytum og öðrum ríkisstofnunum til að sporna gegn hamfarahlýnun. Samtökin benda á að stjórnvöld hafi ekki gripið til aðgerða þegar kemur að því að draga úr neyslu dýraafurða en dýraeldi í landbúnaði orsakar hluta losunar sem stjórnvöld bera ábyrgð á.
Um helmingur af losun landbúnaðar tilkominn vegna dýraeldis
Í áskoruninni er vitnað í orð Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfisráðherra við minningarathöfn um jökulinn Ok um síðustu helgi. Þar hét hann því að gera það sem hann gæti til þess að koma í veg fyrir að fleiri jöklar á Íslandi hverfi. Samtökin segja hins vegar að lítið virðist vera á döfinni hjá stjórnvöldum varðandi einn mikilvægasta þáttinn í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, sem er það að draga úr neyslu dýraafurða.
„Stjórnvöld hafa ekki gefið nein skýr skilaboð frá sér varðandi þennan þátt en landbúnaður telur 13 prósent af losun miðað við Kýótó-bókina (en 21 prósent af losun sem fellur undir beina ábyrgð íslenskra stjórnvalda). Um 50% af þessari losun landbúnaðar er metangaslosun vegna dýraeldis en metangas er gróðurhúsalofttegund sem er 25 sinnum skaðlegri umhverfinu en koltvísýringur en að sama skap þeim eiginleikum gætt að hreinast fljótar úr andrúmsloftinu en koltvísýringur,“ segir í áskoruninni.
Hvetja stjórnvöld til að bjóða börnum upp á grænkerafæði
Samtökin benda á að íslensk börn hafi sent skýr skilaboð um að grípa þurfi til aðgerða með loftslagsverkföllum á föstudögum alla síðustu skólaönn. Þrátt fyrir það standi krökkum ekki til boða að velja sér grænkerafæði í skólum.
„Mörg börn þurfa að fara með nesti í leik- og grunnskóla upp á hvern einasta dag þar sem skólarnir fara fram á læknisvottorð til að börnin geti fengið grænkerafæði. Það er margsannað að plöntumiðað mataræði er fullnægjandi að öllu leyti á öllum æviskeiðum og því væri rökrétt skref að bjóða upp á þann kost í öllum skólamötuneytum landsins.“
Hvetja samtökin því stjórnvöld til þess að bjóða upp á grænkeravalkosti í skólum og sýna fram á kolefnisspor ólíkra máltíða. Þetta muni spara fé þar sem grænkerafæði sé almennt ódýrara, ásamt því að auðvelda matreiðslu í skólum þar sem flest algengustu ofnæmi séu fyrir dýraafurðum.
Að lokum segir að áskorunin eigi við um allar stofnanir ríkis og sveitarfélaga, þar á meðal sjúkrahús en samkvæmt samtökunum reynist oft erfitt að fá grænkerafæði þar. Hægt er að lesa áskorunina í heild sinni hér að neðan.
Samtök grænkera á Íslandi hefur sent út áskorun til umhverfisráðherra, ríkisstjórnar og sveitarfélaga vegna vöntunar á...
Posted by Samtök grænkera á Íslandi on Tuesday, August 20, 2019