365 miðlar hf. skiluðu 1.027 milljóna króna tapi í fyrra. Ingibjörg, S. Pálmadóttir forstjóri og aðaleigandi félagsins segir afkomu ársins 2018 litast af eftirfylgni sölu á rekstri 365 í árslok 2017 ásamt áhrifum af ágreiningsmáli við skattayfirvöld. Frá þessu er greint í Fréttablaðinu í dag en 365 er eigandi helmingshlutar í Torgi ehf., útgáfufélagi Fréttablaðsins.
Í október á síðasta ári seldi 365 miðlar 10,92 prósent hlut sinn í Sýn sem félagið fékk þegar það seldi ljósvaka- og fjarskiptastarfsemi sína til Sýnar í lok ársins 2017. Söluverðið var um tveir milljarðar króna.
Í umfjöllun Fréttablaðsins segir að tap félagsins skýrist að stærstum hluta af einskiptisliðum sem tengjast aflagðri starfsemi félagsins í kjölfar sölu á ljósvaka-, fjölmiðla- og fjarskiptarekstri, eða 591 milljón króna.
Þá nam álagður og reiknaður tekjuskattur félagsins vegna fyrri ára 537 milljónum króna og gangvirðisleiðréttingar af hlutabréfum 294 milljónum króna. Samtals höfðu framangreindir liðir því neikvæð áhrif á afkomu síðasta árs að fjárhæð 885 milljónir króna.
Í árslok 2018 nam eigið fé móðurfélagsins 1.409 milljónum króna og eiginfjárhlutfall félagsins var 41 prósent. Þá hefur félagið ákveðið að auka hlutafé um 1.200 milljónir króna á þessu ári.
„Afkoma ársins 2018, sjóðsstreymi og breytingar á efnahagsreikningi litast mjög af eftirfylgni sölu á rekstri 365 í árslok 2017 ásamt áhrifum af því að ágreiningsmál við skattayfirvöld hafa verið til lykta leidd. Eftir þetta tiltektarár hjá félaginu og hlutafjáraukningu hefur eignasafn og fjárhagur 365 styrkst til muna og mun félagið halda áfram að nýta þau tækifæri sem gefast og vera virkur þátttakandi í fjárfestingarverkefnum,“ segir Ingibjörg í samtali við Fréttablaðið.