Innskráningum á Ísland.is fjölgaði um 96 prósent milli áranna 2018 og 2019. Í ágúst í fyrra voru innskráningar samtals 766.177 og á þessu ári voru þær 1.501.749 talsins.
Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár.
Þá segir í frétt Þjóðskrár um málið að samtals hafi 10.251.664 innskráningar verið skráðar síðastliðna tólf mánuði. Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega.
Flestir nota rafræn skilríki í farsíma
Enn fremur kemur fram að íslykill sé hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar sé líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum.
Þann 2. september 2019 höfðu verið gefnir út 287.952 íslyklar til einstaklinga og 17.467 til fyrirtækja. Í síðasta mánuði notuðu 39,1 prósent íslykilinn, 0,24 prósent rafræn skilríki á korti og 60,28 prósent rafræn skilríki í farsíma.