Shri Ram Nath Kovind, forseti Indlands, mun flytja opið erindi í Hátíðasal Aðalbyggingar Háskóla Íslands þriðjudaginn 10. september næstkomandi. Frá þessu er greint á vef HÍ.
Yfirskrift erindis forseta Indlands í Háskóla Íslands er „Indland og Ísland fyrir græna plánetu“ og er það opið öllum á neðan húspláss leyfir.
Forseti Indlands er væntanlegur hingað til lands í opinbera heimsókn í boði forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar, dagana 10. og 11. september næstkomandi. Þetta er fyrsta heimsókn forseta Indlands til norræns ríkis.
Kovind var kjörinn forseti Indlands í júlí árið 2017 með 65 prósent atkvæða. Hann er fjórtándi forseti landsins en embættið er ekki valdamikið.
Hann var ríkisstjóri í héraðinu Bihar 2015 til 2017 og þingmaður í efri deild indverska þingsins á árunum 1994 til 2006. Kovind er lögfræðingur að mennt og starfaði sem slíkur áður enn hann hóf afskipti af stjórnmálum fyrir aldarfjórðungi. Hann er stéttlaus, eða það sem kallað er dalíti, en þetta var í annað sinn sem stéttlaus maður var kjörinn forseti landsins.
Jón Atli Bendiktsson, rektor Háskóla Íslands, mun kynna Kovind og mun Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, flytja lokaorð.