Landsréttarmálið fer fyrir efri deild Mannréttindadómstólsins

Efri deild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur ákveðið að taka fyrir Landsréttarmálið.

Sigríður Á. Andersen sagði af sér embætti vegna dóms Mannréttindadómstólsins í Landsréttarmálinu.
Sigríður Á. Andersen sagði af sér embætti vegna dóms Mannréttindadómstólsins í Landsréttarmálinu.
Auglýsing

Efri deild Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu hefur ákveðið að taka hið svo­kall­aða Lands­rétt­ar­mál fyr­ir. Þetta hefur Kjarn­inn fengið stað­fest en máls­að­ilum var greint frá þessu í dag. Greint verður frá ákvörð­un­inni opin­ber­lega á morg­un.

Alls munu fimm dóm­arar taka málið til umfjöll­un­ar. 

Dóm­­stóll­inn felldi dóm sinn í mál­inu 12. mars síð­­ast­lið­inn. Í honum fengu bæði Sig­ríður Á. And­er­­sen, fyrr­ver­andi dóms­­­­mála­ráð­herra, og Alþingi á sig áfell­is­­­­dóm fyrir það hvernig haldið var á skipan 15 dóm­­­­ara við Lands­rétt í byrjun júní 2017. 

Auglýsing

Sig­ríður fyrir að hafa brotið stjórn­­­sýslu­lög með því að breyta list­­­­anum um til­­­­­­­nefnda dóm­­­­ara frá þeim lista sem hæf­is­­­­nefnd hafði skilað af sér, og fært fjóra dóm­­­­ara af þeim lista en sett aðra fjóra inn á hann án þess að rann­saka og rök­­­­styðja þá ákvörðun með nægj­an­­­­legum hætti. Alþingi fyrir að hafa kosið um skipan dóm­­­­ar­anna allra í einu, í stað þess að kjósa um hvern fyrir sig. Sig­ríður sagði af sér emb­ætti dag­inn eftir dóm­inn og óvissa ríkir um starf­­­­semi milli­­­­­­­dóm­­­­stigs­ins vegna dóms­ins.

Íslenska ríkið ákvað í apríl að áfrýja þeirri nið­­ur­­stöðu og beina því til efri deildar dóms­ins að taka málið aftur fyr­­ir. 

Sig­ríður hefur gagn­rýnt nið­­ur­­stöð­una

Dómur MDE, sem var í máli manns sem heitir Guð­­mundur Andri Ást­ráðs­­son, var á þann veg að það væri brot á mann­rétt­indum þeirra sem koma fyrir Lands­rétt að fjórir ólög­­­lega skip­aðir dóm­­­arar dæmi í málum þeirra hefur mik­illi spennu í íslensku sam­­­fé­lagi. Dóm­­­ar­­­arnir fjórir geta ekki dæmt og um tíma starf­aði Lands­­­réttur ekki.

Nið­­ur­­staðan var umdeild og var harð­­lega gagn­rýnd úr ýmsum átt­­um. Sig­ríður Á. And­er­­sen sagði í maí, í aðsendri grein í Morg­un­­blað­inu, að MDE hefð­i ­­gerst sekur um atlögu gegn dóms­­kerfi Íslend­inga. „Þess vegna voru mér það sár von­brigði að sjá íslensk stjórn­­­­­mál, fjöl­miðla og rétt­­­ar­­­kerfið falla á kné þegar erlend nefnd sem ekk­ert umboð hefur frá sjálf­­­stæðum Íslend­ingum gerði atlögu að dóms­­­kerfi okkar Íslend­inga.“

Í ágúst tók hún enn sterkara til orða í stöð­u­­upp­­­færslu á Face­­book þar sem hún fjall­aði um orð Helgu Völu Helga­dótt­­­ur, þing­­­manns Sam­­­fylk­ing­­­ar­innar og for­­­manns stjórn­­­­­skip­un­­­ar- og eft­ir­lits­­­nefnd­­­ar, vegna svar­­­leysis núver­andi dóms­­­mála­ráð­herra vegna fyr­ir­­­spurnar hennar um kostnað hins opin­bera af Lands­rétt­­­ar­­­mál­inu svo­­­kall­aða. „Hátt­virtur for­­­maður stjórn­­­­­skip­un­­­ar- og eft­ir­lits­­­nefndar Alþingis notar orðið „skít­­­ur“ um það að íslenska ríkið taki til varna þegar að hags­munum Íslands og íslenskrar stjórn­­­­­skip­unar er sótt í gegnum erlendar stofn­an­­­ir. Það kemur svo sem ekki á óvart að Sam­­­fylk­ingin taki afstöðu gegn Íslandi eins og hún gerði í Ices­ave mál­inu og með umsókn­inni og aðlög­un­inni að Evr­­­ópu­­­sam­­­band­inu á sínum tíma. En þetta orð­bragð lýsir alveg nýjum metn­aði gegn hags­munum Ísland.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent