„Hér er algjörlega vegið að starfi mínu innan lögreglunnar“

Lektor í lög­reglu­fræðum við Há­skól­ann á Ak­ur­eyri segir umræðu um hana á Útvarpi Sögu í tengslum við spillingu innan lögreglunnar vera afskaplega aumkunarverða.

Eyrún Eyþórsdóttir
Eyrún Eyþórsdóttir
Auglýsing

Eyrún Eyþórs­dótt­ir, lektor í lög­­­reglu­fræðum við Há­­skól­ann á Ak­­ur­eyri, segir í Face­book-­færslu að Útvarp saga hafi vegið að starfi sínu innan lög­regl­unnar og Háskól­ans á Akur­eyri með mjög ómak­legum hætti.

Þá segir hún umræðu á Útvarpi Sögu um hana í tengslum við spill­ingu innan lög­regl­unnar vera afskap­lega aumk­un­ar­verða. Tölu­verðar deilur hafa verið innan lög­­­­­regl­unn­­­­­ar, og þá einkum í garð rík­­­­­is­lög­­­­­reglu­­­­­stjóra, Har­alds Jo­hann­essen, en meðal ann­­­­­ars hefur komið fram að þær teng­ist fata­­­málum lög­­­­­­­­­reglu og bíla­­­mál­um, ásamt öðrum mál­u­m.

Í þætti á Útvarpi Sögu sem útvarp­aður var í byrjun síð­ustu viku gerðu Arn­þrúður Karls­dóttir og Pétur Gunn­laugs­son spill­ingu innan lög­regl­unnar að umtals­efni. Á vef­síðu stöðv­ar­innar segir að í þætt­inum hafi verið nefnt dæmi „þar sem Eyrún Eyþórs­dóttir sem á þeim tíma gengdi stöðu vara­þing­manns Vinstri grænna var ráðin án aug­lýs­ingar inn í svo­kall­aða hat­urs­glæpa­deild lög­regl­unnar þar sem henni var ætlað að rann­saka hat­urs­glæpi, en eins og flestum er kunn­ugt var hennar fyrsta verk að ráð­ast gegn Útvarpi Sögu á þeim vett­vangi og mis­not­aði aðstöðu sína innan lög­regl­unnar í póli­tískum til­gang­i.“

Auglýsing

Arn­þrúður sagði meðal ann­ars að Eyrún hefði ekki einu sinni nokkra ein­ustu reynslu af rann­sókn saka­mála, hún hefði verið send þarna beint inn af Vinstri græn­um. Svo væri hún nú komin í Háskól­ann á Akur­eyri þar sem hún þætt­ist vera sér­fræð­ingur í ein­hverjum hat­urs­glæpa­fræðum sem aðjúnkt þar hún kennir „þessi svoköll­uðu hat­urs­glæpa­fræð­i.“

„Ég spyr hvar lærði hún það eign­lega? Fólk verður að vita að það er eng­inn lög­reglu­skóli í land­inu, ég hef fulla samúð með þeim sem ætl­uðu sér inn í lög­regl­una á þeim for­sendum að um alvöru lög­reglu væri að ræða en ekki þetta útþynnta starf sem verið er að bjóða þarna upp á, það er kom­inn tími á að það sé sagt frá þessum aðilum og hverjir þeir eru,“ sagði Arn­þrúður í þætt­in­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent