Fallið frá skyldu um að auglýsa opinber störf í dagblöðum

Í nýjum drögum að reglum um auglýsingar lausra starfa hjá stofnunum ríkisins er fallið frá skyldu um að auglýsa störf í dagblaði á landsvísu og auglýsingaskyldan stytt um fjóra daga

Bjarni Benediktsson,fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Benediktsson,fjármála- og efnahagsráðherra.
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur lagt fram nýjar reglur um aug­lýs­ingu lausra starfa á veg­um ­rík­is­ins til umsagnar á sam­ráðs­gátt stjórn­valda. Í regl­unum er fallið frá­ þeirri ­skyldu að stofn­anir þurfi að aug­lýsa störf í dag­blöðum en í stað þess verði laus störf aðeins aug­lýst á starfa­torg­i.­is. Þá verður aug­lýs­inga­tími jafn­framt styttur úr tveimur vikum yfir í tíu daga. 

Aug­lýs­inga­skyldan stytt um fjóra daga

Sam­kvæmt reglum frá 1996 er ­stofn­un­um ­rík­is­ins  ­skylt að aug­lýsa öll laus ­störf ­laus til umsókn­ar, þó með­ und­an­tekn­ing­um, á op­in­berum vett­vang­i. Fjár­mála­ráð­herra telur að í ljósi breytts umhverfis á aug­lýs­inga­mark­aði sé til­efni til þess að breyta fyr­ir­komu­lagi aug­lýs­inga lausra starfa hjá rík­inu með það fyrir augum að auka hag­kvæmni í reglu­bundnu aug­lýs­inga­ferli. 

Lagt er til í drög­unum að nýju regl­unum að aug­lýs­inga­tími verði styttur úr tveimur vikum frá birt­ingu í dag­blaði yfir í tíu daga að lág­marki frá birt­ingu á sér­stöku vef­svæði, starfa­torg.is, fyrir laus störf hjá rík­inu. Með þessum breyt­ingum er því fallið frá þeim skyldum sem kveðið er á um í núver­andi regl­um, skyldu um að aug­lýsa í dag­blaði á lands­vísu og gild­is­tími aug­lýs­inga verður styttur um fjóra daga. Eftir sem áður er stofn­unum frjálst að aug­lýsa í dag­blöðum sem og með öðrum hætti.

Auglýsing

Ekki skylt að aug­lýsa hluta­störf fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­getu

Jafn­framt leggur ráð­herra til að í nýjum reglum verði ekki skylt að aug­lýsa hluta­störf fyrir fólk með skerta starfs­orku. Ríkið hefur leitað sam­starfs við Vinnu­mála­stofnun og VIRK, starfsend­ur­hæf­ing­ar­sjóð, til að ­skipu­leggja fram­boð hluta­starfa hjá hinu opin­bera fyrir fólk með skerta starfs­getu.

Í drög­unum að nýju regl­unum segir að stofn­unum sé ekki skylt að auglýsa störf sem að­eins eiga að standa í tvo mán­uði eða skem­ur, störf sem eru tíma­bundin vegna sér­stakra aðstæðna, svo sem vegna orlofs, veik­inda, ­fæð­ing­ar- og for­eldra­or­lofs, náms­leyf­is, leyfis til starfa á vegum alþjóða­stofn­ana enda sé ráðn­ing­unni ekki ætlað að standa lengur en 12 mán­uði sam­fellt.

Þá þarf ekki heldur að aug­lýsa störf sem auglýst hafa verið innan síð­ustu sex mán­aða og í þeirri auglýs­ingu hafi þess verið getið að umsóknin geti gilt í sex mán­uði frá birt­ing­u. ­Störf vegna tíma­bund­inna vinnu­mark­aðsúr­ræða á vegum stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins og hluta­störf fyrir ein­stak­linga með skerta starfs­getu þarf ekki heldur að aug­lýsa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent