P (11,8%): Ungt fólk með lágar tekjur, litla menntun en fær sér kokteilsósu með pizzu

Kjarninn hefur fengið aðgang að miklu magni gagna úr síðustu könnunum MMR sem sýna hver líklegasta áferð meðalkjósanda hvers flokks er. Hér að neðan er umfjöllun um kjósendur Pírata.

píratar
Auglýsing

Píratar mæl­ast með 11,8 pró­sent fylgi sam­kvæmt með­al­tali síð­ustu tveggja kann­ana MMR, sem er meira en flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ing­um, en mun minna en þegar Píratar fóru með him­in­skautum í könn­unum árið 2016 og mæld­ust með á fjórða tug pró­sentu­stiga fylgi.

Píratar eru klár­lega flokkur unga fólks­ins og sá flokkur sem nýtur mest stuðn­ings allra hjá kjós­endum undir þrí­tugu, en 18 pró­sent lands­manna í þeim ald­urs­flokki styðja Pírata. Stuðn­ing­ur­inn er líka umtals­verður hjá fólki á aldr­inum 30 til 49 og þar mæl­ast Píratar næst stærsti flokkur lands­ins, á eftir Sjálf­stæð­is­flokkn­um. Þegar kemur að fólki yfir 50 ára þá dalar fylgið skarpt og hjá 68 ára og eldri mælist stuðn­ingur við Pírata ein­ungis þrjú pró­sent. 

Stuðn­ing­ur­inn er líka bund­inn við ákveðin lands­svæði (höf­uð­borg­ar­svæð­ið, Suð­ur­landið og Vest­ur­land/Vest­firði) sem ætla má að sé þétt­býlið á suð­vest­ur­horni lands­ins að uppi­stöð­u. 

Auglýsing
Píratar eru líka vin­sælli hjá þeim sem eru ekki með háskóla­menntun og mæl­ast næst stærsti flokkur lands­ins hjá þeim kjós­endum sem eru með lægstu heim­il­is­tekj­urn­ar. Í fullu sam­ræmi við það þá er tekju­hæsti hóp­ur­inn lang ólík­leg­astur til að kjósa Pírata, en af þeim flokkum sem mæl­ast með mann inni á þingi er ein­ungis Vinstri græn með minna fylgi á meðal þeirra sem best hafa það fjár­hags­lega á Íslandi.

Píratar eru lík­legir til að vilja ferð­ast í sum­ar­frí­inu sínu, 61 pró­sent þeirra er á Instagram og 80 pró­sent er með áskrift að Net­fl­ix. Þeir hafa líka mestar áhyggjur allra af spill­ingu í fjár­málum og/eða stjórn­málum á Íslandi (71 pró­sent) og til að fá sér kok­teilsósu með pizzu, en tæpur þriðj­ungur Pír­ara er opinn fyrir þeim sam­runa. 

Grein­ingin er hluti af stærri umfjöllun þar sem kjós­endur allra flokka sem eiga full­trúa á Alþingi eru teknir fyr­ir. Hún byggir á ítar­legum gögnum frá MMR úr könn­unum sem fyr­ir­tækið hefur fram­kvæmt á fylgi flokka í ágúst og sept­em­ber 2019 auk fjölda ann­arra sér­tækra kann­ana um ýmis álita­mál sem MMR hefur fram­kvæmt á þessu ári. Hægt er að lesa heild­ar­um­fjöll­un­ina hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent