Arna, laktósafría mjólkurvinnslan í Bolungarvík, hefur tekið í notkun umhverfisvænni umbúðir fyrir þykku ab-mjólkina sína. Pappi er aðal hráefnið í dósinni sjálfri og lokið verður úr áli, auk þess sem að plastskeið og auka plastlok eru kvödd. Þannig minnkar Arna plastnotkun um 85 prósent miðað við hefðbundnar jógúrt eða skyrdósir.
Á næstu mánuðum hyggst fyrirtækið færa alla jógúrt og skyr framleiðsluna sína í slíkar pappaumbúðir auk þess sem fyrirtækið ætlar að skipta öllum plastbökkum út fyrir pappabakka.
„Okkar stefna er að starfa í eins mikilli sátt við umhverfið og okkur er kostur. Nýju umbúðirnar okkar eru að fullu endurvinnanlegar, þær fara með öðrum pappa í endurvinnslu þótt að í þeim sé nettur plast kross til styrkingar,“ segir Hálfdán Óskarsson, framkvæmdarstjóri Örnu.
Hrist upp í mjólkurvörumarkaðinum
Arna hóf framleiðslu á laktósafríum mjólkurvörum í Bolungarvík fyrir sex árum og hefur vöxtur fyrirtækisins verið mikill frá þeim tíma.
Alls sögðust 40 prósent nota vörur frá Örnu að staðaldri í nýlegri könnun MMR. Jafnframt skaust fyrirtækið beint í fimmta sæti yfir þau fyrirtæki sem Íslendingar mæla helst með í könnun MMR en fyrirtækið var í fyrsta skipti mælt í ár.
Í greiningu MMR segir að það veki athygli að hærra hlutfall viðskiptavina segist versla reglulega hjá Örnu en hjá nokkru öðru fyrirtæki á lista þeirra fimm efstu. „Það er því nokkuð ljóst að landsmenn hafa heldur betur tekið vel við tilraunum þessarar ungu og efnilegu mjólkurvinnslu til að hrista upp í mjólkurvörumarkaðnum,“ segir í greiningunni.