Efling hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Gissurar Péturssonar, ráðuneytisstjóra félagsmála, sem mætti fyrir hönd félags- og barnamálaráðherra, Ásmundar Einars Daðasonar, í pallborð um málefni erlends starfsfólks á Íslandi á Þjóðarspegli Háskóla Íslands í síðustu viku. Undir yfirlýsinguna skrifa Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður stéttarfélagsins, og Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður.
Efling fordæmir í yfirlýsingunni ummæli og framgöngu ráðuneytisstjórans og skorar á Ásmund Einar að axla ábyrgð í málinu.
Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, vitnaði einnig í ummæli Gissurar í pontu Alþingis í gær en hann sagði að þau hefðu verið ansi sláandi. Hann sagði að Gissur hefði meðal annars sagt að hann teldi ekki ástæðu til að fræða innflytjendur um réttindi sín á vinnumarkaði heldur væri það á ábyrgð innflytjenda að afla sér upplýsinga. Auk þess hefði hann sagt að það þýddi ekkert að styrkja íslenskukennslu þar sem innflytjendur nenntu ekki að læra tungumálið og enn fremur hefði hann sagt hversu gott það væri að losna við fólk af íslenskum vinnumarkaði í þessu samhengi.
Í yfirlýsingu Eflingar kemur fram að málflutningur þátttakenda hafi almennt verið vandaður að undanskildum þeim sem viðhafður hafi verið af fulltrúa ríkisvaldsins.
Þá hafi Dovelyn Rannveig Mendoza, sérfræðingur í stefnumótun á sviði fólksflutninga, velt því fyrir sér eftir ummæli Gissurar hvort þýðingin hefði verið rétt og hvar hún væri eiginlega stödd.
„Það voru fleiri en Dovelyn sem trúðu vart ummælum og framgöngu Gissurar á fundinum. Ástæðan var sú að ummælin voru fullkomlega úr samhengi við grunnforsendur umræðunnar – að fólk af erlendum uppruna sem starfi á íslenskum vinnumarkaði sé fólk, manneskjur, sem sáttmáli meirihluta okkar sem búum hér um að starfrækja velferðarþjóðfélag nái til,“ segir í yfirlýsingu Eflingar.
Ummælin vöktu ugg og reiði meðal þátttakenda
Þau viðhorf gagnvart verkafólki af erlendum uppruna sem endurspegluðust í ummælunum voru á þessa leið samkvæmt Eflingu:
Það er auðvelt að losa sig við þau og það er kostur! Við höfum boðið þeim íslenskunámskeið en þetta fólk nennir ekki að læra tungumálið! Af hverju ættum við að hlúa að þeim – við vitum ekki betur en að það sé á leið úr landi!
Þá kemur fram hjá Eflingu að viðhorf sem þessi lýsi mikilli vanvirðingu gagnvart fólki af erlendum uppruna. Dovelyn Rannveig hafi dregið þá hliðstæðu og sett í samhengi við reynslu sína af málefnum erlends verkafólks í Mið-Austurlöndum að orð ráðuneytisstjóra líktust viðhorfum valdhafa í Jórdaníu og Sameinuðu arabísku furstadæmunum til erlends verkafólk.
Gissur ber mikla ábyrgð innan málaflokksins
„Ummælin vöktu ugg og reiði meðal þátttakenda í pallborði og áhorfenda. Hein de Haas beindi orðum sínum til ráðuneytisstjórans og undirstrikaði mistök annarra þjóða sem hafa hunsað og vanrækt erlent verkafólk sem leggur hönd á plóg á vinnumarkaði og sest að í samfélaginu.
Því miður hefur Efling þurft að hafa afskipti af alvarlegum málum þar sem brotið hefur verið með grófum og skipulögðum hætti á erlendu verkafólki. Sem ráðuneytisstjóri félagsmála, og áður forstjóri Vinnumálastofnunar, ber Gissur mikla ábyrgð innan málaflokksins. Við meðhöndlun málanna hafa fulltrúar Eflingar orðið vitni að ummælum og framgöngu sem eru í samræmi við ofangreind ummæli þar sem hann hefur haft velferð brotaþola í flimtingum og lagt áherslu á væntanlegan brottflutning verkamanna úr landi fremur en úrlausn og skipulega meðferð brotanna,“ segir í yfirlýsingunni.
Ásmundur Einar illa upplýstur
Jafnframt vitna þær Sólveig Anna og Agnieszka Ewa í grein Sabine Leskopf, sem birtist á Kjarnanum um helgina, en hún fjallaði um ummæli Gissurar á gagnrýninn hátt.
„Því sem hér hefur verið lýst bendir til vanhæfis núverandi ráðuneytisstjóra félagsmálaráðuneytis til að starfa að málum er snerta erlent verkafólk. Ráðherra sem skipað hefur í embættið og ber pólitíska ábyrgð, Ásmundur Einar Daðason, hefur í tilsvörum vísað til þess að hann sé illa upplýstur um það sem sagt var í hans umboði á fundinum,“ segir í yfirlýsingu Eflingar.