Vill að Kristján Þór stigi til hliðar og að eignir Samherja verði frystar

Þingmaður vill að sjávarútvegsráðherra Íslands víki og að eignir Samherja verði frystar af þar til bærum yfirvöldum. Samherji átti 111 milljarða í eigið fé í lok síðasta árs.

Helga Vala Helgadóttir
Auglýsing

„Í mínum huga kemur ekk­ert annað til greina en að eignir Sam­herja verði frystar núna strax á meðan á rann­sókn stend­ur. Um er að ræða rann­sókn á mögu­legu mútu­broti, pen­inga­þvætti og skatta­laga­brot­um. Hér er ekki um ein­hverja sjoppu að ræða heldur millj­arða­fyr­ir­tæki með umtals­verð umsvif í fjölda ríkja og skatta­skjóls­svæð­u­m.“

Þetta segir Helga Vala Helga­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í stöðu­upp­færslu á Face­book. Hún minnir þar auk þess á að eignir dæg­ur­laga­hljóm­sveit­ar­innar Sig­ur­rósar hafi verið frystar vegna rann­sóknar á meintum skatta­laga­brotum hljóm­sveit­ar­með­lima sem varð­aði nokkra tugi eða hund­ruð millj­óna.

„Þá tel ég heldur ekk­ert annað koma til greina en að sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Sam­herja stígi til hliðar á meðan á rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara stendur enda málið algjör­lega for­dæma­laust.“ Þar á Helga Vala við Krist­ján Þór Júl­í­us­son. 

Eigið fé Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, sam­kvæmt árs­reikn­ingum félaga hennar á Íslandi, var 111 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. 

Í mínum huga kemur ekk­ert annað til greina en að eignir Sam­herja verði frystar núna strax á meðan á rann­sókn stend­ur. Um...

Posted by Helga Vala Helga­dóttir on Wed­nes­day, Novem­ber 13, 2019

Krafa Helgu Völu er sett fram í kjöl­far þess að umfjöll­un, sem unnin var í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­innar, Al Jazeera og Wiki­leaks og opin­beruð var í gær­kvöldi. Í henni kom fram að hópur sem inn­i­heldur meðal ann­­ars sjá­v­­­ar­út­­­vegs- og dóms­­mála­ráð­herra Namib­­íu, hefur fengið 1,4 millj­arð króna hið minnsta greiddan frá Sam­herja á und­an­­förnum árum. Auk þess hafi ráð­herra í Angóla fengið greiðsl­­ur. Namibísku ráð­herr­arnir hafa báðir sagt af sér emb­ætti í dag. 

Auglýsing
Í umfjöll­un­inni kom einnig fram að rök­studdur grunur sé um stór­­fellda skatta­snið­­göngu Sam­herja við að koma ágóð­­anum af þeim við­­skiptum sem fyr­ir­tækið stund­aði þar undan og til skatta­­skjóla. Þá liggur fyrir að norski bank­inn DNB, sem er að hluta til í eigu norska rík­­is­ins, stöðv­­aði við­­skipti við félög tengd Sam­herja á Kýpur og Mar­s­hall-eyjum vegna þess að reglur um varnir gegn pen­inga­þvætti voru ekki upp­­­fyllt. Þau mál eru til skoð­unar hjá norsku efna­hags­brota­­deild­inni og deildar emb­ættis hér­­aðs­sak­­sókn­­ara þar í landi, sam­­kvæmt Stund­inni.

Kjarn­inn greindi frá því í gær­­kvöldi að Jóhannes Stef­áns­­­son, sem var verk­efna­stjóri Sam­herja í Namibíu fram til árs­ins 2016, og steig fram í Kveik-þætti kvölds­ins, hefði rætt við starfs­­­menn hér­­­aðs­sak­­­sókn­­­ara í gær. Jóhannes við­­ur­­kenndi í Kveiks-þætt­inum að hafa brotið lög fyrir hönd Sam­herja þegar fyr­ir­tækið náði í umtals­verðan kvóta í Namib­­­íu. Þar kom einnig fram að Jóhannes hefði gefið sig fram við yfir­­­­völd í Namib­­­­íu, hefði fengið laga­­­­lega stöðu upp­­­­­­­ljóstr­­­­ara og aðstoð­aði nú við rann­­­­sókn þeirra á starfs­háttum Sam­herj­­­­a. 

Emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra stað­festi einnig við Kjarn­ann í dag að því hafi borist gögn nýlega frá namibískum yfir­­völd­­um.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent