„Ef við, sem komum fram í þágu Íslands, eigum að geta lofað frumkvæði og dugnað í útvegi og öðrum greinum íslensks atvinnulífs, verðum við að sjá í verki að þar sé unnið af heilindum. Þeirri heildarmynd er vel hægt að halda við, sé vilji fyrir hendi.“
Þetta sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, þegar hann ávarpaði starfsfólk álversins í Straumsvík síðastliðinn föstudag. Með þessum orðum er hægt að draga þá ályktun að hann hafi meðal annars verið að vísa í Samherjamálið þó hann nefni fyrirtækið ekki sérstaklega.
Óverjandi framferði
Hann sagði að það væri engum til góðs að skapa falsmynd eða þegja þunnu hljóði þegar óréttlæti og grályndi blasi við. „Ýmsar sögur eru til af erlendum stórrisum, sem hösluðu sér völl á nýjum stað og fóru offari, léku innfædda grátt, með blekkingum, svikum og mútum. Þannig framferði er auðvitað óverjandi.“
Guðni sagði enn fremur að Íslendingar yrðu að geta borið höfuðið hátt í útlöndum, ekki síst þau sem hefðu notið trausts til trúnaðarstarfa fyrir land og þjóð.
Hitti nýjan sendiherra Namibíu
„Við viljum eiga okkar flaggskip og lofa þá sem þar eru á stjórnpalli, fólk í heimi menningar og mennta, íþrótta og lista, fólk í heimi hátækni og nýsköpunar, fólk í heimi iðnaðar og útvegs. Lengi höfum við stært okkur af forystuhlutverki til sjávar, þekkingu okkar og reynslu og vilja til að vinna með öðrum, öllum til hagsbóta,“ sagði hann.
Guðni nefndi það sérstaklega að þetta hefði hann einmitt gert nýlega í heimsóknum ytra og þegar hann tók á móti nýjum sendiherra Namibíu, George Mbanga Liswaniso, í lok október síðastliðins.
Í frétt forsetaembættisins um málið segir að rætt hafi verið um sameiginlega hagsmuni Íslands og Namibíu á alþjóðavettvangi og hafi sjónum einkum verið beint að mengun hafanna, plasti og öðrum úrgangi sem spillir lífríkinu. Þá hafi enn fremur verið rætt um árangur Namibíumanna og frumkvæði í jafnréttismálum, og möguleika á samstarfi ríkjanna í þeim efnum. Loks hafi verið rætt um fiskveiðar undan ströndum Namibíu og framtíðarhorfur þar í þágu heimamanna.
Hægt er að lesa ávarp forsetans í heild sinni hér.